Faldi sjö mánaða barn undir rúmi
Lögreglan í Flórída í Bandaríkjunum hefur fundið barn, sem hafði verið saknað í sex daga. Barnið fannst undir rúmi barnapíunnar.
Shannon Dedrick, sem er sjö mánaða gömul, fannst í kassa á heimili barnapíunnar Susan Baker, sem er skammt frá bænum Chipley. Lögreglan segist nú íhuga að leggja fram ákærur á hendur Baker, eiginmanni hennar og móður barnsins. Þetta kemur fram á fréttavef breska ríkisútvarpsins.
Það voru foreldrar barnsins sem höfðu samband við lögregluna á laugardag og lýstu eftir henni. Lögreglan leitaði í nærliggjandi skógi og á heimili foreldranna áður en hún heimsótti heimili barnapíunnar í gær.
Lögreglan segir að húsráðendur hefðu gefið leyfi til húsleitar og það varð til þess að barnið fannst í kassa undir rúmi. Búið var að ýta alls konar dóti að kassanum til þess að fela barnið að sögn lögreglu.
Shannon litla var flutt á sjúkrahús, en hún virðist heilsuhraust og hefur verið komið í umsjá barnaverndaryfirvalda.
Lögreglan hefur staðfest að í ágúst sl. hafi barnapían skrifað ríkisstjóra Flórída bréf þar sem hún heldur því fram að barninu hafi verið misþyrmt. Hún óskaði eftir aðstoð. Dómsskjöl sýna fram á að félagsmálayfirvöld í Flórída hafi rannsakað hvort barnið væri í mikilli hættu.
Þá staðfestir lögreglan einnig að Baker hafi verið yfirheyrð árið 2000 vegna máls frá árinu 1987, en þá hvarf þriggja ára gamall sonur þeirra í Suður-Karólínu. Baker sagði við lögregluna að hún hefði verið sofandi þegar barnið, sem hefur ekki fundist, hefði horfið.
Þá hlaut hún dóm fyrir alvarlega líkamsárás gegn sex ára gamalli stúlku í Suður-Karólínu árið 1987.
Erlent »
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 19. nóvember 2008, Erlent Engar afsagnir vegna Baby P
- Laugardagur, 23. janúar 2010, Erlent Smábarn fannst í kirkju
- Mánudagur, 9. nóvember 2009, Erlent Köttur kæfði ungbarn
- Mánudagur, 8. mars 2010, Erlent Barnið fannst grafið í skafl
- Fimmtudagur, 30. júlí 2009, Erlent Kviðristubarn fundið í Bandaríkjunum
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden



































