Putin saknar Austur-Þýskalands
Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússlands, sagði í viðtali við NTV-sjónvarpsstöðina í dag að hann saknaði Austur-Þýskalands. Putin var útsendari KGB í Dresden meðan kommúnistar réðu Austur-Þýskalandi.
Putin kvaðst eiga góðar minningar frá því hann var staðsettur í Dresden á árunum 1985-1990. Þar lærði hann þýsku, stundaði fjallaferðir og átti í samskiptum við austurþýska starfsfélaga.
„Ég man enn hlýjuna og alúðina,“ sagði Putin í viðtalinu. Það var tekið í tengslum við gerð heimildamyndar um fall Berlínarmúrsins fyrir tveimur áratugum. Helstu fjölmiðlar Rússlands fengu að birta glefsur úr viðtalinu.
Putin kvaðst vera þakklátur fyrir árin sem hann dvaldi í Austur-Þýskalandi og hann sagðist finna til nokkurs söknuðar. „En við sjáum nú hvernig sambandslýðveldið (hið sameinaða Þýskaland) er að þróast og við gleðjumst yfir því að eiga góð samskipti á nýjum grundvelli,“ sagði Putin. „Það setur allan söknuð vitanlega í annað sætið.“
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem Putin ræðir opinberlega um ár sín í leyniþjónustunni, en þau hafa verið hulu sveipuð. Putin sagði um ár sín í Austur-Þýskalandi að þau væru „ekki verstu árin í lífi mínu og ég myndi jafnvel segja að þau hafi verið góð ár.“
Bloggað um fréttina
-
Gunnar Th. Gunnarsson Ég kom til A-Þýskalands árið 1980 -
Guðmundur Jónas Kristjánsson Pútin saknar hiðs kommúniska Austur-Þýzkalands
Erlent »
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 3. desember 2010, Erlent Með augu morðingjans
- Miðvikudagur, 7. apríl 2010, Erlent Rússland ekki að baki óeirðum í Kírgistan
- Fimmtudagur, 2. desember 2010, Erlent George Bush mjög fínn náungi
- Sunnudagur, 12. desember 2010, Erlent Hraðlest milli Pétursborgar og Helsinki
- Fimmtudagur, 28. október 2010, Erlent Putin með glóðarauga á fundi
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden



































