Sárbændi son sinn um að gefa sig fram
Móðir grunaðs morðingja kom nýverið fram í sjónvarpi í Japan og sárbændi son sinn um að gefa sig fram við lögregluna.
Þrítugur sonur konunnar, Tatsuya Ichihashi, er eftirlýstur vegna morðsins á 22 ára gamalli breskri kennslukonu, Lindsay Ann Hawker, sem fannst látin í baðkari á verönd íbúðar mannsins nærri Tókýó í mars 2007.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni hefur maðurinn farið í lýtaaðgerð til þess að breyta útliti sínu. Lögreglan hefur dreift myndun af manninum eins og hann er talinn líta út núna. Vísbendingar eru um að maðurinn hafi þar til í síðasta mánuði unnið við byggingavinnu í borginni Osaka í rúmt ár.
Haft er eftir vinnuveitanda hans þar að hann hafi verið að safna sér pening og spurst fyrir um hvernig hann gæti útvegað sér japanskan passa, sem bendir til þess að hann hyggist flýja land.
Fjölskylda hinnar látnu hefur ítrekað ferðast til Japans og tjáð óánægju sína með það að lögreglunni skuli ekki takast að hafa hendur í hári morðingjans. Lögreglan hefur hækkað þær fégreiðslur sem þeim er komið geti henni á spor morðingjans býðst.
Móðir Ichihashi kom fram í sjónvarpi og biðlaði til sonar síns um að gefa sig fram.
„Þetta er mamma, Tatsuya. Við pabbi þinn höfum ákveðið að tala um tilfinningar okkar, þrátt fyrir að við vitum að þér muni mislíka það,“ sagði konan meðal annars. Hún lýsti því hversu ánægð þau hjónin hefðu verið þegar þau heyrðu hversu iðinn sonur þeirra væri og fréttu af því að hann hefði tjáð vinnufélögum sínum að hann vildi vera foreldrum sínum góður sonur.
„Ef það er rétt, vertu þá svo góður að fara á lögreglustöðina í Gyotoku og segðu þeim sannleikann. Gerðu það,“ sagði konan snöktandi.
Stuttu eftir að yfirlýsing móðurinnar var send út handtók japanska lögreglan mann sem hún telur vera Tatsuya Ichihashi.
„Við höfum handtekið mann í borginni Osaka, sem virðist vera sá sem leitað hefur verið í morðmáli,“ er haft eftir talsmanni rannsóknarlögreglunnar í Osaka. „Við vinnum nú að fá bera kennsl á manninn.“
Erlent »
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 30. ágúst 2009, Erlent Fjöldamorð á hjólhýsastæði
- Þriðjudagur, 11. nóvember 2008, Erlent Danskir kaupmenn bjartsýnir
- Föstudagur, 1. maí 2009, Erlent Stjúpi Baby P fundinn sekur um nauðgun
- Laugardagur, 21. mars 2009, Erlent Pakistanar komu að árásunum
- Fimmtudagur, 1. apríl 2010, Erlent Lögreglan greiðir skaðabætur
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden



































