Bílsprengja sprakk við herstöð í Kabúl
Bílsprengja sprakk utan við NATO-herstöð í Kabúl höfuðborg Afganistan með þeim afleiðingum að þrír erlendir hermenn særðust sem og þrír óbreyttir borgarar. Frá þessu er greint á vef breska ríkisútvarpsins.
Skotmark sprengjunnar var herstöð sem nefnist Phoenix þar sem erlendar herdeildir þjálfa heimamenn. Talið er að skæruliðasveitir Talíbana standi að baki árásinni.
Ekki er langt síðan breskir ráðamenn töluðu í minnisblaði um að mögulegt væri að ná sáttum milli afganskra stjórnvalda og leiðtoga Talíbana innan næsta tveggja ára. Jafnframt hefur verið lögð aukin áhersla á að þjálfa heimamenn til að taka við hlutverki erlendra hermanna í því að halda uppi friði í landinu.
Breska ríkisútvarpið hefur komist yfir hluta minnisblaðsins, en í því er bent á leiðir til þess að draga úr ófriði í landinu og þar með veita herliði NATO færi á því að yfirgefa landið. Meðal þess sem þar er lagt til er að leiðtogar Talíbana verði fjarlægðir af bannlistum Bandaríkjamanna á næstu sex mánuðum. Talið er að minnisblaðið sé eitt margra slíkra sem útbúin hafi verið fyrir Hamid Karzai, forseta Afganistan, sem býr sig nú undir að stjórna landinu enn eitt kjörtímabilið.
Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, vísar því í samtali við breska ríkisútvarpið á bug að Bretar séu að undirbúa einhvers konar plan B í samskiptum sínum við Talíbana. Hann tók hins vegar fram að Bretar styddu afganska ráðamenn í því að ná sáttum við Talíbana ef slíkt innibæri að Talíbanar létu af ofbeldisverkum sínum og tækju þess í stað virkan þátt í stjórnmálaumræðunni.
Jafnframt sagðist Brown vera vongóður um að honum myndi takast að sannfæra þjóðarleiðtoga aðildarríkja NATO um mikilvægi þess að senda 5.000 fleiri hermenn til Afganistans í því skyni að þjálfa heimamenn í hernaði.
Erlent »
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 17. september 2009, Erlent 16 féllu og 55 særðust í Kabul
- Laugardagur, 17. júlí 2010, Erlent Bera lítið traust til NATO
- Laugardagur, 29. maí 2010, Erlent Sjálfsmorðssprengja í Kabúl
- Miðvikudagur, 5. nóvember 2008, Erlent Fimm létust í sprengjuárás
- Miðvikudagur, 28. janúar 2009, Erlent Fjórir drepnir í sprengjuárás í Kandahar
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden





































