Réttarhöld í nágrenni Tvíburaturna
Réttarhöldin yfir Khalid Sheikh Mohammed, sem talinn er hafa skipulagt árásirnar á Bandaríkin 11. september 2001 og fjórum samverkamönnum hans, munu væntanlega vera í borgaralegum dómstól í nágrenni Tvíburaturnanna í New York.
Eric Holder, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti þetta í gærkvöldi. Hann sagði að saksóknarar myndu krefjast dauðarefsingar yfir Mohammed og félögum hans en þeir eru allir í haldi í fangabúðum Bandaríkjamanna við Guantanámo flóa á Kúbu. Verða þeir fluttir til New York til þess að mæta við réttarhöldin.
„Eftir átta ára tafir munu þeir sem eru meintir ábyrgðarmenn hryðjuverkaárásanna 11. september loks svara til ábyrgðar," sagði Holder án þess að tiltaka hvaða dag réttarhöldin hefjast.
Hann sagði að þeir yrðu fluttir til New York til þess að svara fyrir þá glæpi sem þeir eru ákærðir fyrir í dómshúsi sem er einungis nokkrum húsalengjum frá þeim stað þar sem Tvíburaturnarnir stóðu, sagði Holder í gærkvöldi.
Fimm aðrir fangar í Guantanámobúðunum þurfa hins vegar að mæta fyrir herrétt. Meðal þeirra er Abd al-Rahim al-Nashiri, sem er ákærður fyrir að hafa skipulagt tilræðið sem eyðilagði bandaríska herskipið USS Cole við strendur Jemen árið 2000.
Herdómsstóllinn hefur verið harðlega gagnrýndur allt frá því George W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, kom honum á seint á árinu 2001. Hann hefur hins vegar verið skipulagður upp á nýtt og njóta sakborningar meiri mannréttina en áður.
Gera má ráð fyrir að verjendur í réttarhöldunum í New York muni nú reyna að fá úrskurð um að vitnisburður sem fengist hefur með ólöglegum aðferðum í yfirheyrslum, eins og t.d. vatnspyntingum, sé ólöglegur en vitað er að Mohammed sætti slíkri meðferð.
Nær 3.000 manns létu lífið þegar 19 hryðjuverkamenn flugu farþegaþotum á Tvíburaturnana í New York og hús varnarmálaráðuneytisins í Washington auk þess sem ein vélin brotlenti í Pennsylvaníu.
Erlent »
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 30. janúar 2010, Erlent Réttarhöld jafnvel færð í annan dómssal
- Miðvikudagur, 18. nóvember 2009, Erlent Standa við ákvörðun sína
- Sunnudagur, 15. nóvember 2009, Erlent Giuliani gagnrýnir staðsetningu réttarhalda
- Föstudagur, 13. nóvember 2009, Erlent Réttað yfir al-Qaedaliða í New York
- Þriðjudagur, 10. mars 2009, Erlent Ásakanir um hryðjuverk eru heiður
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden



































