Palin kennir starfsmönnum framboðsins um ósigurinn
Sarah Palin, sem var varaforsetaefni bandaríska Repúblikanaflokksins í forsetakosningunum þar í landi á síðasta ári, kennir í nýrri sjálfsævisögu óhæfum starfsmönnum framboðsins um þær hremmingar sem hún lenti í meðan á kosningabaráttunni stóð.
Fyrrverandi starfsmenn framboðsins hafa látið hafa eftir sér að ásakanir Palin séu uppspuni.
Bókin, sem nefnist Going Rouge, An American Life, kemur út á þriðjudag og er fyrsta prentun 1,5 milljónir eintaka. Bandarískir fjölmiðlar hafa um helgina birt kafla úr bókinni. Þar staðfestir Palin, að mikil spenna hafi ríkt á milli hennar og helstu ráðgjafa framboðs hennar og Johns McCains, forsetaframbjóðanda. Harðast gagnrýnir Palin Steve Schmidt, sem stýrði stefnumótunarvinnu framboðsins. Fram hefur þó komið í öðrum bókum, að það var Schmidt sem barðist helst fyrir því að Palin yrði valin sem varaforsetaefni.
Hún kvartar m.a. yfir því að hafa þurft að klæðast dýrum tískufatnaði, að hafa ekki fengið að flytja ávarp um kosninganóttina, yfir því að hafa ekki fengið að tala við fréttamenn meðan á kosningabaráttunni stóð og hvernig hún var æfð í merkingarlausum svörum fyrir kappræður hennar við Joe Biden, varaforsetaefni Demókrataflokksins.
Þá er Palin afar bitur vegna viðtalsins, sem Katie Couric, fréttamaður CBS sjónvarpsstöðvarinnar, átti við hana. Segir Palin að Couric hafi verið yfirlætisfull, hlutdræg og pirrandi. Þá hafi innihaldsríkustu svör hennar verið klippt út áður en viðtalið var sent út.
Sérfræðingar eru almennt sammála um að umrætt viðtal hafi leitt til þess að ljóminn af framboði Palins fór að dofna en þar kom í ljós að þekkingu hennar á mörgum málum var ábótavant. Palin segir í bókinni, að aðstoðarmenn hennar hafi reynt að troða of mörgum staðreyndum inn í höfuð hennar á of stuttum tíma.
Þá segist Palin hafa sjálf þurft að greiða 50 þúsund dala reikning vegna lögfræði- og rannsóknarvinnu, sem framboð McCains lét vinna til að tryggja að engar beinagrindur væru í skápum Palins. Trevor Potter, lögfræðilegur ráðunautur framboðsins, segir hins vegar við AP fréttastofuna, að Palin hafi ekki verið beðin um að greiða þennan reikning. Hafi lögmaður Palin sent henni reikning í tengslum við þessa vinnu þá hafi það ekki verið að undirlagi framboðsins.
Í bókinni er lýst hvað gerðist bak við tjöldin áður en tilkynnt var að Bristol, 17 dóttir Palin, var þunguð. Palin segist hafa fengið yfirlýsingu í hendur sem hún breytti en síðan var upphaflega yfirlýsingin send til fréttastofa.
Palin lýsir sálarstríði sínu, fyrst þegar hún frétti af því að dóttir hennar væri þunguð og síðan þegar þessi viðkvæmu einkamál fjölskyldunnar urðu aðalefni fjölmiðla. Í viðtali við sjónvarpskonuna Barbara Walters um helgina sagðist Palin ekki hafa vitað að dóttir hennar stundaði kynlíf fyrr en hún frétti að hún væri með barni. Í bókinni minnist Palin hins vegar ekki einu orði á barnsföður Bristol, Levi Johnston, sem nýlega sat fyrir á myndum fyrir tímaritið Playgirl.
Blaðamaðurinn Lynn Vincent aðstoðaði Palin við skriftirnar en Vincent er ritstjóri tímaritsins prédikaratímaritsins World.




































