Mjótt á munum í öldungadeildinni
Öldungadeild Bandaríkjaþings undirbýr sig nú fyrir að halda atkvæðagreiðslu um viðamikið 2.000 blaðsíðna frumvarp demókrata um breytingar á ameríska heilbrigðiskerfinu. 60 atkvæði þarf af 100 í öldungadeildinni svo að frumvarpið fái að halda áfram til frekari þinglegrar meðferðar.
Greint er frá þessu á fréttavef BBC.
Demókratar, undir forystu þingmannsins Harry Reid sem er flutningsmaður frumvarpsins, þurfa því að tryggja sér atkvæði tveggja óháðra þingmanna, þar sem allir 40 repúblikanarnir í öldungadeildinni eru andsnúnir frumvarpinu. Demókratar þurfa ekki síður að fullvissa sig um eininguna innan sinna eigin raða, því að minnsta kosti þrír þeirra hafa lýst yfir efasemdum um frumvarpið.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur gert breytingar á heilbrigðiskerfinu að forgangsmáli í bandarískum stjórnmálum. Ef ekki tekst að koma frumvarpinu í gegnum þessa atkvæðagreiðslu og inn í þingumræður segja stjórnmálaskýrendur að það þýði ekki endilega endalok þess, en að það geti seinkað ferlinu umtalsvert fram á næsta ár.
Fulltrúadeildin, eða neðri deildin, samþykkti frumvarpið í svipaðri atkvæðagreiðslu með litlum mun fyrir skömmu síðan.
Næstu skref verða þau að 30. nóvember kemur öldungadeildin aftur saman eftir stutt hlé í kringum þakkargjörðarhátíðina. Þá verður frumvarpið rætt og væntanlega einhverjar breytingar á því lagðar til.
Að minnsta kosti þremur vikum síðar mun öldungadeildin greiða atkvæði um frumvarpið. Ef það fær samþykki verður sett upp samráðsnefnd á milli neðri og efri deildar þingsins til að sameina breytingar hvorrar deildar á frumvarpinu í eitt frumvarp. Að því loknu kjósa báðar deildir um frumvarpið. Ef það hlýtur samþykki þarf undirskrift Baracks Obama til þess að það taki gildi sem lög.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 22. nóvember 2009, Erlent Obama vann fyrstu lotu
- Laugardagur, 19. desember 2009, Erlent Styður frumvarp Obama
- Fimmtudagur, 16. desember 2010, Erlent Vill afnema bann við því að hommar gegni herþjónustu
- Sunnudagur, 8. nóvember 2009, Erlent Sigur fyrir Obama
- Sunnudagur, 20. desember 2009, Erlent Frumvarp líklega samþykkt
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































