Obama vann fyrstu lotu

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Öldungadeild Bandaríkjanna samþykkti með 60 atkvæðum gegn 39 að hefja umræðu um frumvarp Bandaríkjaforseta um heilbrigðistryggingar. Hvíta húsið lýsti því yfir í nótt, að unnist hefði sögulegur sigur í þessari atkvæðagreiðslu þótt mjóu hafi munað.

Demókratar ráða 58 þingsætum af 100 í deildinni og greiddu þeir allir atkvæði með því að frumvarpið yrði tekið á dagskrá þótt þrír þeirra hafi lýst efasemdum um frumvarpið. Þá greiddu tveir óháðir þingmenn atkvæði með frumvarpinu. Þar með tryggðu demókratar sér nægan þingmeirihluta til að tryggja, að repúblikanarnir 40 í öldungadeildinni gætu ekki komið í veg fyrir umræðuna með málþófi.

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur gert breytingar á heilbrigðiskerfinu að forgangsmáli í bandarískum stjórnmálum og eiga þær að tryggja, að 31 milljón Bandaríkjamanna, sem ekki njóta heilbrygðistrygginga nú, fái þær. Reiknað er með að frumvarpið, verði það að lögum, kosti bandaríska alríkið 848 milljarða dala til ársins 2019 en dragi á sama tíma úr halla ríkissjóðs sem nemur 130 milljörðum dala. 

„Hin sögulega atkvæðagreiðsla í nótt færir okkur skrefi nær því, að koma í veg fyrir misnotkun tryggingafélaga á kerfinu, draga úr sívaxandi kostnaði við heilbrigðisþjónustu, tryggja stöðugleika í þjónustun við þá sem eru með heilbrigðistryggingu og veita þeim, sem ekki hafa slíka tryggingu, bætta þjónustu," sagði Robert Gibbs, talsmaður Hvíta hússins.

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings, eða neðri deildin, samþykkti frumvarpið  með litlum mun fyrir skömmu. Næstu skref verða þau að 30. nóvember kemur öldungadeildin aftur saman eftir stutt hlé í kringum þakkargjörðarhátíðina. Þá verður frumvarpið rætt og væntanlega einhverjar breytingar á því lagðar til.

Að minnsta kosti þremur vikum síðar mun öldungadeildin greiða atkvæði um frumvarpið. Ef það fær samþykki verður sett upp samráðsnefnd á milli neðri og efri deildar þingsins til að sameina breytingar hvorrar deildar á frumvarpinu í eitt frumvarp. Að því loknu kjósa báðar deildir um frumvarpið. Ef það hlýtur samþykki þarf undirskrift Baracks Obama til þess að það taki gildi sem lög.  

Talið var að þrír þingmenn demókrata í öldungadeildinni kynnu að greiða atkvæði gegn því að frumvarpið kæmist á dagskrá. Þetta voru Mary Landrieu, þingmaður Louisiana, Blanche Lincoln, þingmaður Arkansas og Ben Nelson þingmaður Nebraska. Hafa þau öll gert kröfu um breytingar á frumvarpinu. Einn þingmaður repúblikanaflokksins, George Voinovich þingmaður Ohio, greiddi ekki atkvæði í nótt. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Skrúðgangan var af veglegri gerðinni.

Tóku forskot á sæluna í Bonn

Í gær, 19:44 Þar eð stutt er í hápunkt kjöthátíðar í Þýsklandi þýðir það aðeins eitt. Stutt er í veglegar skrúðgöngur á borð við þær í Köln, Düsseldorf, Aachen og Mainz. Í Bonn tóku menn þó forskot á sæluna en þar var farin skrúðganga í dag. Meira »
Mótmæli voru víðs vegar um Evrópu í dag.

Fjöldamótmæli vegna ACTA

Í gær, 18:38 Tugir þúsunda mótmæltu í Þýskalandi í dag gegn umdeildum lögum sem nefnd eru ACTA (e. Anti-Counterfeiting Trade Agreement) og eru gegn brotum á höfundarrétti, sem talin eru geta heft frelsi á netinu. Meira »

Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið myndskeið

Sýrlenskur flóttamaður ber stjórnvöldum söguna illa
Í gær, 22:00 Sýrlenskir flóttamenn segja að fréttaflutningur af ástandinu í landinu sé aðeins dropi í hafið, svo slæmt sé ástandið. Töluverður fjöldi af myndböndum hafa borist af ofbeldi hersins gegn almennum borgunum, en ekki hefur verið hægt að staðfesta að myndböndin séu raunsönn. Meira »

Veður hamlar aðgerðum á strandstað myndskeið

Snjór hamlar aðgerðum á strandstað
Í gær, 17:53 Kuldakastið í Evrópu hefur haft sín áhrif á aðgerðir á strandstað skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Mikill snjór á ítölsku eyjunni Giglio hefur hamlað björgunarmönnum í að dæla úr skipinu 2.300 tonnum af olíu sem eru í tönkum skipsins. Meira »

Fimm blaðamenn handteknir

Í gær, 16:03 Breska lögreglan handtók í dag fimm blaðamenn hjá breska blaðinu The Sun. Handtaka er að sögn lögreglunnar liður í rannsókn hennar á greiðslum blaðsins til lögreglu- og embættismanna fyrir upplýsingar. Meira »

Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu myndskeið

Suu Kyi tekið sem rokkstjörnu
Í gær, 20:06 Þúsundir þyrptust út á götu í Búrma til að taka á móti leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Búrma, Aung San Suu Kyi. Erlendir fjölmiðlar greina frá að henni hafi verið tekið eins og rokkstjörnu, þvílíkt voru fagnaðarlætin. Meira »

Barist um skatta og eyðslu

Í gær, 17:22 Baráttan um forsetaembættið í Bandaríkjunum er hafinn og meðan forsetaframbjóðendur Repúblikanaflokksins nýta hvert tækifæri í forvali flokksins til þess að gagnrýna Barack Obama, forseta Bandaríkjanna hefur forsetinn ákveðið að snúa vörn í sókn og markað stefnu sína í fjárlögum komandi árs. Meira »

Lét sér fátt um finnast við strandið

Skemmtiferðaskipið Costa Concordia marar nú í hálfu kafi við eyjuna Giglio.
Í gær, 15:44 Myndband, sem tekið var á ítalska skemmtiferðaskipinu Costa Concordia, skömmu eftir að það steytti á skeri 13. janúar síðastliðinn, sýnir að skipstjóri skipsins lét sér fátt um finnast við strandið. Lögregla hyggst nota upptökuna við rannsókn sína. Meira »

Hóta vesturlöndum og Ísrael

Í gær, 15:34 Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans sagði í dag að heimurinn muni fljótlega fá vitneskju um framfarir í kjarnorkuáætlun Írans en Bandaríkin og ríki Evrópusambandsins hafa hert þvinganir á Íran vegna rannsókna sinna á sviði kjarnorku. Meira »

Hvatt til fjöldamótmæla á Spáni

Leiðtogar tveggja stærstu verkalýðsfélaga á Spáni; Ignacio Fernandez Toxo hjá CCOO og Candido Mendez hjá ...
Í gær, 14:37 Tvö stærstu verkalýðsfélög Spánar hvetja til fjöldamótmæla eftir rúma viku, sunnudaginn 19. febrúar. Mótmæla á niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Íranar fagna byltingarafmæli myndskeið

Íranar fagna byltingarafmæli
Í gær, 15:08 Þúsundir Írana fagna nú 33 ára afmæli íslamsbyltingarinnar í landinu, en hún var gerð árið 1979. Fólkið veifaði fánum landsins og hampaði stórum myndum af leiðtoga byltingarinnar, Ayatollah Ruhollah Khomeini og arftaka hans Ayatollah Ali Khamenei. Meira »

Gingrich og Santorum herja á Obama

Rick Santorum.
Í gær, 12:56 „Við munum ekki biðjast afsökunar og hverfa frá þeim gildum okkar, sem gera land okkar svo stórkostlegt, til þess að geta unnið sigur í nóvember“ sagði Rick Santorum, frambjóðandi í forvali Repúblikana til forsetaframboðs, á ráðstefnu í morgun. Meira »

Barist um bandarísku sálina

Mitt Romney.
Í gær, 12:45 Mitt Romney, frambjóðandi í forvali Repúblikana til forsetaframboðs, lofar því að sameina Repúblikana og að sigra Barack Obama. Hann segir kosningarnar vera „baráttu um bandarísku sálina“. Forkosningar fara fram í Maine-ríki í dag. Meira »

Dóná fraus í nótt

Skip siglir í klakahröngli á Dóná í gær. Áin er nú frosin á um 11 ...
Í gær, 11:29 Yfirborðsvatn Dónár fraus í nótt, skammt frá höfninni í Silistra í Búlgaríu. Þetta er í fyrsta skipti í 20 ár sem áin frýs.  Meira »

Saadi Gaddafi boðar byltingu

Saadi Gaddafi á velmektarárum sínum með keppnistreyju sína.
Í gær, 09:49 Saadi Gaddafi, einn sona Múammars Gaddafi heitins, fyrrum forseta Líbíu, segir að ný bylting kraumi meðal Líbíumanna sem séu óánægðir með nýja stjórnarhætti í landinu. Hann heitir því að snúa aftur til síns heima, en hann flúði til Níger. Meira »

Ásaka Breta um hervæðingu

Í gær, 12:42 Utanríkisráðherra Argentínu, Hector Timberman, hefur sakað bresk stjórnvöld um að koma fyrir kjarnorkuvopnum við Falklandseyjar. Stjórnmálamenn, sérstaklega í Argentínu, hafa undanfarið haft sig nokkuð í frammi vegna deilunnar um yfirráð yfir Falklandseyjum. Meira »

Segja al-Qaeda bera ábyrgð í Sýrlandi

Ungir drengir vopnaðir byssum og sprengjum sjást á al-Qaeda æfingu.
Í gær, 10:55 Íraskir al-Qaeda liðar eru sagðir bera ábyrgð á tveimur sprengjum sem nýlega sprungu í borginni Damaskus í Sýrlandi. Að auki eru samtökin talin vera ábyrg fyrir sprengjunum tveimur sem sprungu í sýrlensku borginni Aleppo í gær með þeim afleiðingum að 28 létu lífið. Meira »

Rómarborg snæviþakin myndskeið

Enn snjóar í Evrópu
Í gær, 09:34 Ekkert lát er á frosti og snjókomu á meginlandi Evrópu og liggur nýfallin mjöll eins og hvítt teppi yfir Rómarborg, en það mun afar fátíð sjón. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gott atvinnuhúsnæði við Tunguháls
Hentar vel fyrir heildverslun. Nýlega tekið í gegn. Jarðhæðin er um 300 fermetra...
Öflugar kraftviftur - Íshúsið ehf
Eigum á lager úrval af mjög öflugum kraftviftum. Frekari upplýsingar á www.ishu...
Akureyri - Glæsileg íbúðagisting
Vönduð og vel útbúin íbúðagisting á Akureyri. Komdu norður og láttu þér líða vel...
Lítil risíbúð á Akranesi
Til leigu 77 m2 risíbúð við Deildartún á Akranesi. Leiga 75 þ., rafm og hiti inn...
 
Stúkan glitnir
Félagsstarf
l GLITNIR 6012020819 III ...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Félagsráðgjafi
Sérfræðistörf
Félagsráðgjafi F...
Bifreiðauppboð
Nauðungarsala
Uppboð Eftirtaldar bifreiðir ver...