Áfengisvandinn dýr í Rússlandi

Heimilslaus maður í hlýjar sér með vodka í vetrarkuldanum í Rússlandi.

Heimilslaus maður í hlýjar sér með vodka í vetrarkuldanum í Rússlandi. Reuters

Karlmenn í Rússland, þar sem yfirvöld hafa lýst áfengissýki sem hamförum, geta gert ráð fyrir að lifa skemur en flestir kynbræður þeirra í Evrópu, því lífslíkur þeirra eru aðeins 60 ár. Þetta er langt fyrir neðan meðaltal stórþjóða í Vestur-Evrópu, s.s. Þýskalandi þar sem lífslíkur karlmanna eru 77 ár og á Íslandi þar se lífslíkur karla eru 79,6 ár, þær mestu í heimi. 

Há dánartíðni ungra, vinnandi manna er sagt vera stærsta heilsufarslega vandamál sem Rússar glíma við, en síðustu ár hefur áfengi verið orsök yfir 50% dauðsfalla í landinu. Áfengi er sagður vera einn helsti sökudólgurinn, en síðan Sovétríkin féllu hefur neysla áfengis og tóbaks aukist mjög. Stíf  áfengisdrykkja er hluti af daglegu lífi hjá mörgum og þá ekki síst neysla á sterku áfengi, þjóðardrykknum vodka. Talið er að Rússar neyti að meðaltali 18 lítra af hreinu alkóhóli árlega. 

Rannsóknir sýna að þeir sem jafnan eru hvað viðkvæmastir fyrir alkahólisma eru menn með litla menntun og atvinnulausir og það er einmitt það sem margir Rússar búa við eftir fall Sovétríkjanna, þegar atvinnuleysi fór upp úr öllu valdi og stór hluti þjóðarinnar bjó við fátækt.

Við 18 ára aldur hefur meðalkarlmaður í Vestur-Evrópu 90% líkur á því að ná eftirlaunaaldri, en í Rússlandi verða aðeins 50% karla svo gamlir. Áfengisvandamálið virðist vera minna meðal rússneskra kvenna, sem ná að meðaltali til 73 ára aldri, en á hinn bóginn hafa reykingar aukist verulega meðal ungra kvenna í Rússlandi.  

Aukning áfengsi- og tóbaksnotkunar hefur leytt til þess að hjartasjúkdómar eru algengari og fleiri frá krabbamein en áður. Ríkisstjórnin hefur gert tilraunir til að mæta bæta heilsu þjóðarinnar. Áfengisvandinn skánaði t.a.m. ögn árið 2006 eftir að hömlur voru settar á sölu alkóhól sem ekki er ætlað til drykkju, s.s rakspíra sem margir leggja sér til munns.

Talið er líklegt að efnahagsvandinn nú tefji umbætur í heilbrigðismálum, auk þess sem streita og atvinnuleysi fer vaxandi á nýjan leikí landinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Flugumferðarstjórar að störfum

Tafir á flugi í Portúgal

10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »
Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að renna barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Coton De Tulear til sölu
Erum með yndislega Coton De Tulear til sölu. Uppl í síma 5668417 www.dalsmynni.i...
Mongoose Sycamore 26" fjallahjól
Stórgott óslitið 12 ára gamalt hjól til sölu; https://bland.is/messageboard/mes...
SAUMAVÉLAR
Saumavélar- saumavélaviðgerðir Nýjar og notaðar...
Sérsmíðuð garðhúsgögn
Til sölu sérsmíðuð garðhúsgögn úr gagnvarini furu upplýsingar í síma 8694479 og ...
 
Teacher, nautical education
Grunn-/framhaldsskóla
Lofoten Maritime College Norway POSI...
Umsjónarkennsla - sérkennsla - textílkennsla - þroskaþjálfi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...