Palin verður ekki forseti

Sarah Palin gaf nýverið út bók sem mikla athygli hefur fengið. stækka

Sarah Palin gaf nýverið út bók sem mikla athygli hefur fengið. REBECCA COOK

Sarah Palin, fyrrverandi varaforsetaefni, nýtur ekki vinsælda í Bandaríkjunum og á ekki möguleika á að verða kjörin forseti Bandaríkjanna. Þetta segir Gerald J. Austin, pólitískur ráðgjafi frá Bandaríkjunum, sem hélt fyrirlestur í dag í Háskóla Íslands.

Austin á langan feril að baki sem pólitískur ráðgjafi í Bandaríkjunum. Hann hefur t.d. starfað fyrir Jimmy Carter, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, þingmennina Gary Hart, Paul Tsongas, Carol Moseley Braun, Jesse Jackson og Barack Obama.

Talsverð athygli hefur beinst að Söruh Palin upp á síðkastið en nýkomin er út bók eftir hana þar sem hún fjallar um feril sinni og síðustu forsetakosningar, en hún var varaforsetaefni Johns McCains. Austin sagði að stuðningsmenn McCains hefðu vísað á bug ýmsu af því sem kemur fram í bókinni. Hann sagði að veruleg andstaða væri við hana innan Repúblikanaflokksins. Hún ætti sér vissulega stuðningsmenn inn flokksins en sá stuðningur væri ekki víðtækur.

Austin var á fyrirlestrinum spurður út í þá gagnrýni að Obama sýndi of mikla linkind í samskiptum við pólitíska andstæðinga sína. Hann sagði að sú gagnrýndi ætti vissulega rétt á sér. Obama hefði í mörgum málum rétt fram sáttarhönd og jafnvel boðið fram hina kinnina þegar hann hefði fengið yfir sig harða gagnrýni. Austin sagði að ekki hefði verið tekið vel í sáttatilraunir Obama og því mætti búast við að hann yrði harðari í sinni pólitík þegar liði á kjörtímabilið.

Austin sagði að Bandaríkjamenn gerðu sér grein fyrir að efnahagserfiðleikarnir í Bandaríkjunum væru ekki Obama að kenna, en þeir ætluðust til þess að hann lagaði það sem úrskeiðis hefði farið og það strax. Hann sagði að staða efnahagsmála í Bandaríkjunum væri mjög erfið. Atvinnuleysi nú væri það mesta síðan á kreppuárunum á þriðja áratug síðustu aldar. Pólitísk framtíð Obama réðist að miklu leyti af því hvernig tækist að vinna bug á vanda efnahagslífsins.

Austin sagði að einstök stemming hefði skapast í kringum kjör Obama. Um tvær  milljónir manna hefðu verið viðstaddar þegar hann var settur inn í embætti. Honum hefði tekist að virkja ungt fólk til þátttöku í kosningabaráttunni sem hefði átt stóran þátt í að tryggja kjör hans. Reynslan sýndi að pólitísk velgengni væri stundum skammvin. Það væri óljóst hvernig staðan yrði á miðju kjörtímabili þegar kosið verður til þingsins, en í dag hafa demókratar meirihluta í báðum deildum þingsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Flugumferðarstjórar að störfum

Tafir á flugi í Portúgal

10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »
Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að renna barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
RÝMINGARSALA Á VÖRUBÍLADEKKJUM
Rýmingarsala á vörubíladekkjum 315/80 R 22.5 75.000 + vsk. ...
Til sölu stór og vel staðsett eignarlóð
Mjög stór og vel staðsett eignarlóð samtals 3,62ha. Lóð númer H-37 í Heklubyggð...
Sirius Hundasnyrting, Hundaheim Mosfellsbæ
Tökum allar gerðir hunda í snyrtingu - Persónuleg þjónusta og frábær verð, gerið...
Hæðarkíkir - þrífótur - stika
Til sölu hæðarkíkir Leica Runner 20, þrífótur og stika. Verð 40000...
 
Director of the administration division
Stjórnunarstörf
The European Free Trade Association is c...
Verkefnisstjóri - stofnun vigdísar finnbogadóttur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...