Réttarhöld yfir Demjanjuk hafin

Réttarhöld yfir John Demjanjuk, fyrrverandi fangaverði í útrýmingarbúðum nasista í seinni heimstyrjöldinni í Sobidor í Póllandi eru hafin í München í Þýskalandi. Honum er gefið að sök að hafa átt þátt í að myrða að minnsta kosti 29 þúsund gyðinga í Sobibor. Í fangabúðunum voru 250 þúsund manns tekin af lífi á einu og hálfu ári.

Demjanjuk var keyrður inn í réttarsalinn í hjólastjól en fjölskylda Demjanjuk segir að hann sé alvarlega veikur. Var hann með lokuð augun en greinilega með meðvitund, að sögn fréttamanna sem fylgjast með réttarhöldunum.

Demjanjuk var framseldur frá Bandaríkjunum fyrr á árinu til Þýskalands. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem sótt er að Demjanjuk. Hann var framseldur frá Bandaríkjunum til Ísraels fyrir 23 árum. Honum var gefið að sök að hafa starfað í Treblinka-fangabúðunum og hlotið viðurnefnið Ívan grimmi. Þar var hann dæmdur til dauða, en ný gögn komu fram í málinu til vitnis um að hann væri ekki Ívan grimmi og hæstiréttur Ísraels hnekkti dauðadóminum. Demjanjuk var látin laus og fór aftur til Bandaríkjanna, að því er fram kom í grein Karls Blöndal í Morgunblaðinu fyrr á árinu.

Demjanjuk fæddist í Úkraínu árið 1920 og var skírður Ívan. Þegar hann var tvítugur var hann kvaddur í rauða herinn. Vorið 1942 var hann tekinn til fanga og um sumarið gaf hann kost á sér til starfa á vegum SS-sveita nasista. Hann hlaut þjálfun í Trawnik-fangabúðunum eins og um fimm þúsund menn, sem hjálpuðu nasistum við þjóðarmorðið á gyðingum og kallaðir voru trawnikar. Eftir þjálfunina varð hann vaktmaður á vegum SS-sveitanna. Hann starfaði í tveimur alræmdustu gereyðingarbúðum nasista, Majdanek og Sobibor í Póllandi. Þegar stríðinu lauk starfaði hann í fangabúðunum í Flossenbürg í Þýskalandi.

Demjanjuk var skráður í hóp þeirra fjölmörgu, sem voru á vergangi í stríðslok, og starfaði fyrir Bandaríkjamenn í ýmsum flóttamannabúðum í Suður-Þýsklandi til 1951. Árið 1952 sigldi hann til Bandaríkjanna ásamt konu og barni og kvaðst hafa verið stríðsfangi í stríðinu. Sex árum síðar varð hann bandarískur ríkisborgari og tók sér nafnið John.

Árið 1977 hóf bandaríska dómsmálaráðuneytið hins vegar málaferli gegn Demjanjuk fyrir að hafa veitt rangar upplýsingar þegar hann varð ríkisborgari og 1981 missti hann ríkisborgararéttinn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Flugumferðarstjórar að störfum

Tafir á flugi í Portúgal

10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »
Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að renna barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Socata TB-10
Til sölu Socata TB-10 árgerð 1999. Vélin er staðsett á Íslandi og með gilt lofth...
NOTAÐ&NÝTT
NOTAÐ&NÝTT er ný verslun á Skemmuvegi 6 á bak við Byko. Mikið úrval af fallegum ...
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01 4 stk. Verð 15.000kr. Uppl. í sím...
GSM öryggis- hússtjórnunar- og vöktunark
Til sölu GSM öryggis- hússtjórnunar- og vöktunarkerfi fyrir, sumarhús, heimili, ...
 
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...
Director of the administration division
Stjórnunarstörf
The European Free Trade Association is c...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...