Kínverjar aðlagi sig að loftlagsbreytingum

Kínversk stjórnvöld hafa heitið því að draga úr losun á hverjum framleiddum hlut fyrir árið ... stækka

Kínversk stjórnvöld hafa heitið því að draga úr losun á hverjum framleiddum hlut fyrir árið 2020 sem nemur um 40-45% samanborið við losun 2005. Reuters

Einn virtasti veðurfræðingur í Kína varar við því að öfgaveðurbreytingar muni geta valdið ómetanlegum skaða, en segir jafnframt að Kínverjar verði að aðlaga sig að loftlagsbreytingum frekar en að reyna að stöðva þær.

„Hlýnun jarðar er staðreynd. Fyrir stórt land eins og Kína er hagkvæmara og mikilvægara að venja sig að breyttum aðstæðum í stað þess að reyna að vinna á móti þróuninni,“ segir Zheng Guoguang, yfirmaður Veðurathugunarstjórnar Kína.

Ummæli Zheng falla í grein sem hann skrifaði í tímariti Kommúnistaflokksins þar í landi sem nefnist Leitin að sannleikanum. Greinin birtist aðeins örfáum dögum áður en loftlagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna á að hefjast í Kaupmannahöfn, en margir höfðu bundið vonir við að Kínverjar myndu gegna lykilhlutverki á þeim fundi. 

Kínverjar hafa haft það að opinberu markmiði bæði að hægja á loftlagsbreytingum og aðlagast breyttum aðstæðum. Í grein sinni lýsir Zheng hugsanlegum afleiðingum loftlagsbreytinganna. Hann áætlar þannig að samdráttur í kornræktun geti numið 37% á næstu áratugum ef ekkert verði að gert til þess að bregðast við breyttum aðstæðum. Svo mikill samdráttur í framleiðslu myndi, að hans sögn, ógna fæðuöryggi landsins.

„Komi afleiðingar loftlagsbreytinganna fram tvisvar eða oftar á næstu fimm árum, sem getur t.d. birst í miklum þurrkum í tvö til þrjú ár, þá gæti það haft óútreiknanleg áhrif á efnahag landsins og samfélagsþróun,“ skrifar Zheng, sem situr í nefnd sem mótar stefnu stjórnvalda í loftlagsmálum.

Hann telur mikilvægt að Kínverjar bregðist við hugsanlegum áhrifum loftlagsbreytinga til þess að draga úr skaðlegum áhrifum þeirra. Sem lið í því hvetur hann stjórnvöld til þess að auka kornbirgðir þjóðarinnar, auka framleiðsluna og bæta varnir ræktarlands og vatnsbóla.

Kína er eitt þeirra landa í heimi sem losar hvað mest af gróðurhúsalofttegundum. Í síðustu viku tilkynntu kínversk stjórnvöld að þau hygðust draga úr losun. Þrátt fyrir að Kínverjar skilgreina sig sem fórnarlamb loftlagsbreytinga þá hafa kínversk stjórnvöld þráast við að minnka losun sína jafn mikið og Sameinuðu þjóðirnar hafa kallað eftir. Kínversk stjórnvöld kenna Vesturlöndum helst um loftlagsbreytingarnar og telja að þróuðu ríkin eigi að því að bera meginþungann af kröfunni um minni losun.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Flugumferðarstjórar að störfum

Tafir á flugi í Portúgal

10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »
Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að renna barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Burðarpokar og burðarsjöl www.hondihond.is
Fullt hús af burðarpokum og burðarsjölum. Henta vel fyrir börn frá 0-3 ára. O...
Juki hraðsaumavél til sölu
Juki hraðsaumavél DLU-450 til sölu. Mjög lítið notuð. Frekari upplýsingar hjá Si...
Yamaha FJR 1300
Fyrsta flokks og glæsilegt mótorhjól. Yamaha FJR 1300 ár 2007 ekið 4.000 km V...
Frí auglýsing NÝR VEFUR
Bílaþjónusta.is bíður öllum að auglýsa bíla mótorhjól hjólhýsi og vagna frítt, s...
 
Starfsmaður í ræstingu
Ræstingar
??????????? ? ???????? ?????????? ??...
Forstöðumaður
Stjórnunarstörf
Hannesarholt er nýlega stofnað menningar...
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Til sölu m-bens e-200

Til sölu M-BENS E-200 Árgerð...