Fréttaskýring: Þrengt að Berlusconi á öllum vígstöðvum
Eftir Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Ásakanirnar komu fram í réttarhöldum, sem nú fara fram í Torino. Gaspare Spatuzza, félagi í mafíunni, bar því vitni hulinn bak við skerm að foringi sinn, Giuseppe Graviano, hefði árið 1994 haft fögur orð um greiðasemi Berlusconis og Marcellos Dell'Utris öldungadeildarþingmanns, sem réttarhöldin snúast um. Dell'Utri er samherji Berlusconis. Hann var dæmdur í níu ára fangelsi fyrir samskipti við mafíuna og er áfrýjun hans nú til umfjöllunar.
Að sögn Spatuzza sagði Graviano að hann hefði „fengið allt, þökk sé áreiðanleika þessa fólks“ og bætti við að fyrir vikið hefði mafían á Sikiley „landið í höndum sér“.
Berlusconi neitar þessu og segir að verið sé að hefna fyrir baráttu sína gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Berlusconi tilkynnti sjálfur á laugardag að tveir háttsettir félagar úr mafíunni á Sikiley hefðu verið handteknir og sagði að þetta væri besta svarið við áburðinum; stjórn sín hefði gert meira til að berjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi en nokkur annar undanfarin 20 ár.
En fleira hrjáir forsætisráðherrann. 1. desember birti blaðið La Repubblica ummæli Gianfrancos Finis, sem á að heita nánasti bandamaður Berlusconis eftir að flokkur hans, Þjóðarsambandið, rann inn í flokk þess síðarnefnda, Fólk frelsis. Tekið var upp þegar Fini sagði að Berlusconi ruglaði saman „forustu“ og „konunglegu einveldi“ og „almennu samþykki ... við einhvers konar friðhelgi gagnvart öllu yfirvaldi“. Fyrirtæki Berlusconis, Fininvest, á líka í kröggum. 1. desember fór dómstóll í Mílanó fram á 750 milljóna evra (137 milljarða króna) tryggingu til að sýna fram á að það gæti greitt skaðabætur vegna yfirtöku á útgáfufélaginu Mondadori á síðasta áratug. Kom í ljós að lögmaður Fininvest hafði mútað dómara til að greiða fyrir tilboði fyrirtækisins.
Þá frestaði dómstóll í Mílanó á föstudag meðferð spillingarmáls þar sem Berlusconi kemur við sögu fram í miðjan janúar. Berlusconi er sakaður um að hafa mútað David Mills, breskum skattalögfræðingi, með 400 þúsund evrum (73 milljónum króna) til að bera ljúgvitni í tvennum réttarhöldum fyrir aldamót. Mills var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi í febrúar. Málaferli gegn Berlusconi voru stöðvuð 2008 eftir að sett voru lög að áeggjan hans sjálfs um að forsætisráðherra nyti friðhelgi. Stjórnlagadómstóll Ítalíu hnekkti síðan þeirri lagasetningu.
Þá er ógetið kvennamála Berlusconis. Þegar hann fór í 18 ára afmæli fyrirsætunnar Noemi Laetizia, var konu hans, Veronicu lario, nóg boðið og ákvað að fara fram á skilnað. Hún krefst 43 milljóna evra (7,9 milljarða króna) í framfærslu á ári. Um þessar mundir blasir einnig við í bókabúðum á Ítalíu bók vændiskonunnar Patriziu D'Addario, þar sem munu vera nákvæmar lýsingar á kynlífsfundum með forsætisráðherranum.
Ofan á þetta bættist Berlusconi-lausi dagurinn um helgina. Hann var haldinn að undirlagi trúðsins Beppe Grillo, sem er vinsælasti bloggari Ítalíu og telur að dagar Berlusconis á valdastóli verði brátt taldir.




































