Lest lenti á fjórhjóli

Tveir karlmenn létust í Cardiff í Wales þegar lest lenti á fjórhjóli, sem þeir óku. Lögreglan er að rannsaka slysið, að sögn breskra fjölmiðla. 

Áreksturinn varð klukkan 4:15 í nótt. Lestin var á leið frá Cardiff til Celtenham á Englandi en engir farþegar voru í henni.  

Nokkrar truflanir urðu á umferð lesta á svæðinu í kjölfarið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert