Obama heldur heim
Bandarísku forsetahjónin Barack og Michelle Obama héldu heim á leið frá Gardemoenflugvelli laust eftir klukkan 10 í morgun eftir sólarhrings heimsókn til Noregs þar sem forsetinn tók við friðarverðlaunum Nóbels.
Heimsókn Obama vakti að vonum mikla athygli í Noregi. Um 10 þúsund manns söfnuðust saman í gærkvöldi utan við Grand Hotel í miðborg Óslóar þar sem haldið var kvöldverðarboð forsetanum til heiðurs. Beið fólkið á torginu utan við hótelið með blys í hendi eftir að forsetahjónin kæmu út á svalir hótelsins.
Skammt frá tóku um 2000 manns þátt í mótmælagöngu gegn stríðsrekstri Bandaríkjamanna og annarra ríkja í Afganistan.
Ræða forsetans, þegar hann tók við friðarverðlaununum, vakti mikla athygli en þar færði Obama rök fyrir því, að að stundum þyrfti að beita hervaldi til að stuðla að friði og öryggi í heiminum. Hann sagði meðal annars að sagan sýndi að Bandaríkin þyrftu að vinna með öðrum löndum í öryggismálum í stað þess að grípa til einhliða aðgerða og Atlantshafsbandalagið væri enn „ómissandi“. Markmiðið væri ekki aðeins að berjast fyrir friði, heldur einnig réttlæti, því að aðeins „réttlátur friður“ gæti verið varanlegur.
Í kvöldverðarboðinu á Grand Hotel flutti Thorbjørn Jagland, formaður norsku verðlaunanefndarinnar, ræðu þar sem hann útskýrði þær ástæður sem lágu að baki því að Obama hlaut Nóbelsverðlaunin. Eftir ræðuna flutti Obama skálaræðu og sagði að Jagland hefði haldið góða ræðu. „Hann sannfærði mig næstum því um að ég ætti verðlaunin skilið," sagði Obama, lyfti síðan glasi sínu og sagði „skål" á norsku.
Í kvöldverðinum á Grand Hotel var norskur matur á boðstólum, þar á meðal hreindýrakjöt og þorskur í forrétti og elgsteik í aðalrétt.
Von er á Obama til Kaupmannahafnar 18. desember þar sem hann mun taka þátt í lokaspretti loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Jónsson Skrítið að maður sem stendur í stríðsrekstri og fjölgar í ... -
Ómar Ragnarsson Styrjöldin til að koma í veg fyrir frekari styrjaldir.
Erlent »
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 10. desember 2009, Erlent Mótmælaganga í Ósló
- Þriðjudagur, 13. október 2009, Erlent Verja Nóbelsverðlaun Obama
- Þriðjudagur, 8. desember 2009, Erlent Telja Obama sýna hroka
- Miðvikudagur, 9. desember 2009, Erlent Gríðarleg öryggisgæsla í Ósló
- Fimmtudagur, 10. desember 2009, Erlent Obama tekur við Nóbelnum
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden





































