Danskir unglingar selja heimagerðar sprengjur

Kraftmiklar heimagerðar sprengjur hafa gengið kaupum og sölum á milli unglinga í 8. og 9. bekk  grunnskóla í Nyborg í Danmörku í gegnum sms samskipti. Lögreglan í Nyborg ræddi við nemendur á þriðjudagskvöld til að hafa uppi á sprengjunum sem eru gerðar með röri og eldhúsrúllu.

Rúllan er fyllt af púðri, lokað fyrir hana á báðum endum með plasti hún vafin með teipi. Sprengikrafturinn getur verið mikill, einsog dæmið sýnir í Harevænget í Nyborg þar sem 2,5 kílóa þung lúga var sprengd af póstkassa, kastaðist 17 metra upp í loftið og lenti á húsvegg.

Við rannsókn fann lögregla alls 39 slíkar eldhúsrúllusprengjur í herbergjum átta grunnskólanema. Þrjár til viðbótar fundust faldar undir tré í almenningsgarði. Lögreglan í Nyborg hefur miklar áhyggjur af málinu og ekki síst af því að fleiri sprengjur kunni að leynast í fórum grunnskólanema.

Í einum sms skilaboðum sem lögregla veit af skrifað 15 ára gamall drengur til skólafélaga sinna að hann hafi verið að fá 80 stórar eldhúsrúllusprengjur og að margar smærri séu væntanlegar. Því er talið að 30-40 sprengjur í viðbótar séu í umferð og þær geti verið stórhættulegar þeim sem kveiki á þeim að sögn lögreglu.

Foreldrar í Nyborg eru hvattir til að ræða við börnin sín á unglingsaldri og láta lögreglu vita ef fleiri sprengjur komi í leitirnar. „Þessar sprengjur eru lífshættulegar og verða að finnast áður ein einhver slasast," segir hefur Politiken eftir lögreglustjóra Nyborg.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Ítalski öryggisvörðurinn Salvatore Girone á leið úr dómshúsinu.

Verðir áfram í varðhaldi

16:20 Indverskur dómstóll hefur dæmt tvo verði af ítölsku olíuflutningaskipi í áframhaldandi gæsluvarðhald. Mennirnir skutu tvo indverska sjómenn til bana. Þeir héldu að mennirnir væru sjóræningjar. Meira »
Þorspbúar skoða ummerki eftir snjóflóðið.

Sextán létust í snjóflóðum

15:42 Að minnsta kosti 16 hermenn létust og þriggja er enn saknað eftir tvö mikil snjóflóð í Kasmír-héraði á Indlandi í nótt. Herbúðir eru að hluta til grafnar undir fönn og varað er við fleiri flóðum. Meira »

Vilja flytja lík Colvin frá Sýrlandi

Marie Colvin. Hún missti sjónina á öðru auga í Sri Lanka árið 2001 en lét ...
14:59 Flytja á breskan ljósmyndara, sem særðist í Homs í Sýrlandi í gær í árás sem varð tveimur vestrænum félögum hans að bana, úr borginni sem fyrst. Að sögn breska utanríkisráðuneytisins á að flytja Paul Conroy til nágrannaríkis þar sem hann mun fá læknisaðstoð. Eki hafa fengist upplýsingar um hvort hann sé enn í Homs eða hvort hann sé lagður af stað. Meira »

Sjö hermenn létust í þyrluslysi

Bandarískir hermenn. Myndin er úr safni.
14:24 Sjö landgönguliðar létust á heræfingu í gærkvöldi í Arizona í Bandaríkjunum þegar tvær þyrlur skullu saman.  Meira »

Obama biðst afsökunar á bókabrennu

Mótmælt skammt frá Kabúl.
13:20 Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur sent Hamid Karzai, forseta Afganistan, afsökunarbeiðni vegna bandarískra hermanna í Bagram-stöðinni sem vanvirtu íslam með því að brenna Kóraninn og fleiri helgirit múslima. Meira »

Leita enn að líkum um borð myndskeið

Costa Concordia björgun
14:37 Enn er leitað að líkum sjö manna sem saknað er eftir að skemmtiferðaskipið Costa Concordia sökk undan ströndum ítölsku eyjunnar Giglio. Lík fimm ára stúlku fannst í gær en faðir hennar fórst einnig í slysinu. Meira »

Látin hlaupa í 3 tíma í refsingarskyni

Savannah Hardin.
13:35 Tvær bandarískar konur hafa verið handteknar eftir að þær létu níu ára stúlku hlaupa í þrjár klukkustundir samfleytt með þeim afleiðingum að hún fékk krampakast vegna ofþornunar og dó nokkrum dögum síðar. Voru konurnar að refsa stúlkunni fyrir að hafa logið að annarri þeirra. Meira »

Segja Ben Bella ýmist lífs eða liðinn

Ahmed Ben Bella.
12:58 Misvísandi fréttir berast nú af því hvort Ahmed Ben Bella, fyrrum forseti Alsírs, sé lífs eða liðinn. Eitt dagblaðanna þar í landi hefur greint frá því að Ben Bella sé látinn, 96 ára að aldri, en alsírsk fréttastofa segir hann í stöðugu ástandi á spítala. Meira »

Aðstoðar þörf í Mósambík eftir fellibylji

Starfsmaður Rauða krossins í útkalli.
11:46 Alþjóðlegi Rauði krossinn kallaði í dag eftir þremur milljónum dala, um 375 milljónum kr., til að aðstoða þúsundir fjölskyldna í Mósambík sem enn bíða aðstoðar eftir að tveir fellibyljir gengu yfir landið í síðasta mánuði. Meira »

Flytja erlenda fanga úr fangelsinu

Fangar í varðturni í Kerobokan-fangelsinu í Denpasar á Balí.
10:38 Yfirvöld í Indónesíu byrjuðu í dag að flytja erlenda fanga úr Kerobokan-fangelsinu á Balí. Þar hafa miklar óeirðir brotist út og hefur föngunum tekist að koma fangavörðunum frá og taka við stjórninni. Meira »

Fórnarlamba nýnasistahóps minnst

Angela Merkel kanslari við minningarathöfnina.
11:11 Einnar mínútu þögn var haldin í Þýskalandi í morgun til að minnast fórnarlamba nýnasista. Angela Merkel kanslari sagði fjölskyldum fórnarlambanna við sérstaka minningarathöfn í Berlín að þjóðin syrgði með þeim. Meira »

Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar myndskeið

Sprenging á umferðamiðstöð í Peshawar
10:07 Átta létust og þrjátíu særðust þegar sprengja sprakk í umferðamiðstöð í Peshawar í norðvesturhluta Pakistans. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni. Meira »

Breivik á marga pennavini

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik
09:37 Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik stendur í umfangsmiklum bréfaskriftum við fjölda manna úr fangaklefa sínum. Honum er mikið í mun að stefnuyfirlýsing hans, hið svokallaða manifesto, nái til sem flestra. Meira »

Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja myndskeið

Fangaverðir handteknir í Mexíkó
07:57 Tugir mexíkóskra fangavarða voru handteknir í gær, grunaðir um að hafa aðstoðað dæmda meðlimi eiturlyfjagengja við að flýja úr fangelsi síðastliðna helgi. Meira »

Fundu lík fimm ára stúlku myndskeið

Kafarar finna fleiri lík í Costa Concordia
07:24 Kafarar fundu í nótt átta lík í flaki skemmtiferðaskipsins Costa Concordia sem marar undan strönd ítölsku eyjarinnar Giglio. Þar á meðal er lík fimm ára gamallar stúlku. Meira »

Halda hátíð fyrir Pútín

Frá hátíðahöldunum í Moskvu í morgun.
08:17 Um 30,000 manns gengu fylktu liði um miðborg Moskvu í morgun til að sýna stuðning sinn við forsetaframboð Vladimirs Pútíns forsætisráherra Rússlands. Stjórnarandstæðingar segja að fólki hafi verið skipað að taka þátt í hátíðahöldunum. Meira »

Segja samkynhneigð glæpsamlega

Frá Indlandi.
07:43 Innanríkisráðuneyti Indlands hvetur hæstarétt landsins til að úrskurða um að kynlíf samkynhneigðra sé glæpur. Ráðuneytið segir það vera ósiðlegt, gegn öllum náttúrulögmálum og að þannig smitist alnæmi. Meira »

Óöld í Írak í nótt

Frá Bagdad í Írak.
07:17 Að minnsta kosti 32 létu lífið í sprengju- og skotárásum í Írak í nótt, þar af létust 22 í höfuðborginni Bagdad.  Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Lazy Boy Stólar
Til sölu tveir lazy boy stólar. Annar stólinn er töluvert upplitaður en að öðru...
Suzuki Baleno wagon 4x4 verð: 170 þ.
Til sölu Baleno árg. 1997, ekinn 220 þús., 1,6L, 5 gíra, Fjórhjóladrifinn. Bíll ...
HÚSGÖGN,HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA TIL SÖLU.
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, ísskápar, þvottavélar, uppþvottavélar, ...
MAZDA 323 ÁRGERÐ 1997
MAZDA 323 ÁRGERÐ 1997 TIL SÖLU. BÍLLINN ER Á GÓÐUM NAGLADEKKJUM OG ÞAÐ FYLGJA SU...
 
Skólameistarar: fjölbrautaskóli suðurnesja, fjölbr. suðurlands
Sérfræðistörf
Laus embætti hjá mennta- og menni...
Sumarstörf: landvarsla, upplýsingagjöf, afgreiðsla o.fl.
Önnur störf
VAT N A J Ö K U L S ÞJ Ó Ð G A R Ð U R ...
Stúkan hekla
Félagsstarf
mHekla 6012022019 IV/ V H...
F0212203-001 einangrað pípuefni

ÚTBOÐ Einangrað pípuefni DN500 Útbo...