Öngþveiti í Bella Center
Alger ringulreið ríkti á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í gærkvöldi ef marka má lýsingar ónafngreindra bandarískra embættismanna um borð í flugvél forseta Bandaríkjanna í nótt. Svo virðist sem þjóðarleiðtogar hafi um tíma gengið um ganga Bella Center í leit hver að öðrum.
Að sögn danska blaðsins Jyllands-Posten var þetta staðan síðdegis í gær þegar Barack Obama vildi hitta þjóðarleiðtoga til að freista þess að ná samkomulagi um loftslagsmál: Flestir kínversku embættismennirnir voru farnir út á flugvöll, Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, var sagður á hóteli sínu, indverski forsætisráðherrann, var talinn vera á flugvellinum og enginn vissi hvar forsætisráðherra Brasilíu væri og hvort hann myndi mæta á staðinn.
Þetta er haft eftir bandarískum ónafngreindum embættismanni, sem upplýsti blaðamenn um borð í bandarísku forsetaflugvélinni um gang mála.
Klukkan 19 í gærkvöldi taldi Obama sig loks hafa haft upp á Wen svo þeir tveir gætu rætt saman. En þegar hann kom inn í fundaherbergið sátu þar einnig þeir Manmohan Singh, forsætisráðherra Indlands, Luiz Inácio Lula da Silva, forseti Brasilíu og Jacob Zuma, forseti Suður-Afríku. Skömmu áður hafði bandarískum embættismönnum sagt að þessir menn væru ekki lengur í Bella Center en nú sátu þeir og skeggræddu um hvernig hægt væri að takmarka umfang samkomulagsins sem mest.
Obama er hleypt inn en það er enginn stóll laus í herberginu, sem hann getur sest í.
„Það er allt í lagi, ég sest bara við hliðina á Lula vini mínum," segir bandaríski forsetinn og treður sér niður í sófa við hliðina á þeim brasilíska.
Hillary Clinton, utanríkisráðherra, sest einnig við hlið þeirra á þröngum bekknum. Síðan veit enginn almennilega hvernig á að hefja samningaviðræðurnar.
Á sama tíma ganga evrópskir þjóðaleiðtogar um ganga Bella Center í leit að Obama og Wen.
Bandaríski embættismaðurinn vildi ekki upplýsa um samtöl Obama, Wen, Lula, Zuma og Singh frekar.
Obama er hins vegar sagður líta svo á, að mikilvægur árangur hafi náðst í samningaviðræðunum milli þeirra ríkja, sem vildu ná samkomulagi, Bandaríkjanna, Evrópuríkja og hópi þróunarríkja, og þeirra ríkja sem vildu ekki að samkomulag yrði gert, það er Kína, Indlands, Brasilíu og Suður-Afríku.




































