19 stiga frost í Danmörku

Það hefur líka snjóað á Spáni eins og þessi mynd …
Það hefur líka snjóað á Spáni eins og þessi mynd frá norðurhluta landsins ber með sér. Reuters

Það er kalt í vesturhluta Evrópu og í nótt mældist 19 stiga frost í Horsens á Jótlandi í Danmörku. Að sögn danskra veðurfræðinga er svona mikið frost afar sjaldgæft í landinu. 

Mjög halt er einnig á norðvesturhluta Frakklands og tilkynnti Eurostar, sem sér um lestarferðir milli Bretlands og Frakklands um Ermarsundsgöngin, að lestarferðirnar muni liggja áfram niðri í dag. 

Yfir 2000 farþegar þurftu að hýrast í lestum í göngunum í fyrrinótt í marga klukkutíma án þess að fá vott eða þurrt. Lestirnar stöðvuðust eftir að þær fóru inn í göngin en raki virðist hafa myndast í rafkerfi þeirra vegna hitabreytinga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert