Á lista yfir hryðjuverkamenn
Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað að kerfi sem haldið er yfir grunaða hryðjuverkamenn verði endurskoðað og rannsakað verði hvernig á því stóð að maður sem skráður er á slíkan lista komst um borð í flugvél með sprengjuefni í fórum sínum.
Hinn 23 ára gamli Nígeríumaður Umar Farouk Abdulmutallab var settur á lista yfir hugsanlega hryðjuverkamenn í síðasta mánuði eftir að faðir hans tilkynnti yfirvöldum og bandaríska sendiráðinu að hann hefði áhyggjur af hegðun sonar síns. Abdulmutallab hafði þá sent fjölskyldu sinni skilaboð þar sem hann tilkynnti þeim að hann væri hættur í meistaranámi og hygðist slíta öllu sambandi við þau.
Alls hafa bandarísk yfirvöld þrjá lista yfir grunaða hryðjuverkamenn og var Adbulmutallab á lista yfir þá sem minnst hætta var talin stafa af, ásamt um 550.000 öðrum mönnum. 18.000 nöfn eru á listanum yfir menn sem meiri hætta stafar af og 4.000 nöfn á lista yfir farþega sem ekki á að hleypa um borð í flugvélar undir neinum kringumstæðum.
Obama hefur nú kallað eftir því að farið verði yfir þetta kerfi til að tryggja að upplýsingarnar komist til skila til þeirra sem taka ákvarðanir um að hleypa fólki um borð. Abdulmutallab ferðaðist frá Nígeríu til Amsterdam og komst þaðan um borð í flugvél á leið til Detroit án athugasemda. Stuttu áður en vélin átti að lenda gerði hann tilraun til að kveikja á sprengjunni undir teppi sem hann hafði yfir sér en var yfirbugaður af farþegum og starfsfólki.
Abdulmutallab er kominn af vel stæðu fólki í Nígeríu, en þar í landi er ekki óalgengt að yfirstéttarfólki sé hleypt í gegnum öryggisgæslu án skoðunar.
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn Þ Gíslason ÞAÐ MUNAÐI EKKI NEMA HÁRSBREIDD, AÐ ALLIR LÉTU LÍFIÐ, Í ...
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 30. desember 2009, Erlent „Nígeríubúar eru ekki hryðjuverkamenn“
- Sunnudagur, 27. desember 2009, Erlent Annar Nígeríumaður handtekinn eftir flug í dag
- Föstudagur, 5. febrúar 2010, Erlent Hálft tonn af sprengiefni finnst í Portúgal
- Miðvikudagur, 2. desember 2009, Erlent Albanir taka við Guantanamo-föngum
- Miðvikudagur, 1. september 2010, Erlent Obama lýsir endalokum stríðsins
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































