Ríkir háskólanemar verði rukkaðir um meira

Frá Oxford-háskóla. stækka

Frá Oxford-háskóla.

Breski hagfræðingurinn David Blanchflower, sem áður sat í peningastefnunefnd seðlabanka Englands, hefur lýst því yfir að fátækir hafi styrkt ríka til náms í of mörg ár. Blanchflower lýsir þessari skoðun sinni í breska blaðinu Observer í dag og kallar þar eftir því að takmörk á skólagjöld verði hækkuð þannig að háskólar megi rukka ríka nema um hærri gjöld á meðan fátækari nemum verði útveguð fjárhagsaðstoð.

Breskum háskólum var nýlega tilkynnt að framlög ríkisins til þeirra verði skorin niður um 135 milljónir punda á næsta ári. „Það brjálaða í þessu er að fólk er tilbúið að borga gríðarlega peninga til að senda börnin sín í einkaskóla á grunnskólastigi, næstum því 30.000 pund á ári fyrir nám í Eton, en þeir eru ekki tilbúnir að borga fyrir háskólanámið þeirra," segir Blanchflower.

„Háskólana sárvantar rekstrarfé. Svo við látum hina ríku borga markaðsverð og notum peningana til að styrkja þá fátækari til náms." Blanchflower er sjálfur prófessor í hagfræði við Dartmouth háskóla í New Hampshire, sem talinn er til „ivy legue" háskólanna í Bandaríkjunum.

„Þar borgar fólk 50.000 dollara á ári, raunverð menntunarinnar, og samt flæðir umsóknum yfir okkur. En helmingur nemendanna fær styrki." Blanchflower segir breska yfirstéttarnema kvarta yfir því að þurfa að borga 3.000 pund fyrir menntunina þegar hún kostar í raun og veru 30.000 pund. Hann segir há skólagjöld halda nemendum við efnið, þeir flosni síður upp úr námi og velji frekar námsleiðir sem geri þá frambærilega á vinnumarkaði. Blanchflower er hinsvegar líka á þeirri skoðun að það sé óráðlegt og mikil synd að ríkisstyrkir til háskóla séu skornir niður á tímum sem þessum.

Ummæli Blanchflower hafa fengið blendin viðbrögð og m.a. verið varað við samanburði hans við bandaríska skólakerfið, því í Bandaríkjunum sé litið á æðri menntun sem fjárfestingu, en í Bretlandi sem mannréttindi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Flugumferðarstjórar að störfum

Tafir á flugi í Portúgal

10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »
Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að reka barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Flott sjónvarp til sölu!
29 tommu túbu sjónvarp frá Sony til sölu. Það er 8 ára gamalt og í góðu lagi. T...
Gasnaglabyssa
Til sölu Hilti naglabyssa. Gasnaglabyssa GX 100. Upplýsingar í síma 8935005 ...
Rockwood fellihýsi
Rockwood 10 feta, árgerð 2007. Fortjald, sólarsella, 2 gaskútar. Skoðað 2012. Ve...
Múrvél
Til sölu Múrvél lítið notuð verð 700.000 kr sími 8919193...
 
Starfsmaður í ræstingu
Ræstingar
??????????? ? ???????? ?????????? ??...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...