Of snemmt að lýsa yfir sigri
Margaret Chan Reuters
Margaret Chan, forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), segir enn of snemmt að lýsa sigri yfir svínainflúensuveirunni. Hún telur að aðgerðir sem gripið var til gegn faraldrinum hafi verið réttlætanlegar.
Chan sagði í samtali við svissneska dagblaðið Le Temps að fylgjast þurfi með þróun heimsfaraldursins næstu 12 mánuði áður en hægt verður að lýsa yfir sigri í baráttunni við svínainflúensuna.
Hún sagði að þótt veikin hafi náð hámarki á norðurhveli jarðar, t.d. í Kanada og Bandaríkjunum, sé fjarri því að faraldurinn sé afstaðinn í ýmsum öðrum löndum. Chan sagði að veturinn væri ekki úti enn og bætti við að heildarmynd af áhrifum svínaflensunnar yrði ekki ljós fyrr en eftir tvö ár.
Staðfest er að a.m.k. 11.516 einstaklingar hafi látist af völdum A(H1N1) veirunnar frá því hún fannst fyrst í mars síðastliðnum. Ör útbreiðsla inflúensunnar sem veiran olli varð til þess að WHO lýsti yfir faraldri í júní s.l.
Sjúkdómurinn varð vægur hjá miklum meirihluta sjúklinga og hefur WHO verið gagnrýnd fyrir að hafa brugðist of harkalega við. Chan varði þá ákvörðun og sagði að stofnunin hafi leitað ráða hjá sjálfstæðum og óháðum ráðgjöfum áður en faraldri var lýst yfir.
Chan sagði einnig að flestir hafi búist við að næsti heimsfaraldur inflúensu yrði af völdum H5N1 fuglaflensuveirunnar. Um 60% þeirra sem veikjast af henni deyja af völdum sjúkdómsins.
Þótt svínaflensufaraldurinn hafi stuðlað að auknum flensuvörnum hjá flestum þjóðum sagði Chan að heimurinn sé ekki viðbúinn því að takast á við heimsfaraldur af völdum fuglaflensu. Hún kvaðst vona að aldrei kæmi til þess að takast þyrfti á við faraldur af völdum fuglainflúensu.
Erlent »
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 18. maí 2009, Erlent Lognið á undan storminum
- Laugardagur, 29. ágúst 2009, Erlent Ótrúlega hröð útbreiðsla svínaflensu
- Miðvikudagur, 29. apríl 2009, Erlent Viðbúnaðarstig 5 vegna flensu
- Miðvikudagur, 15. júlí 2009, Erlent Bið eftir bóluefni löng
- Föstudagur, 3. júlí 2009, Erlent Ómögulegt að hefta útbreiðslu H1N1
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag



































