Baðst afsökunar á ummælum um Obama
Bók, sem er væntanleg um bandarísku forsetakosningarnar árið 2008, hefur þegar vakið mikið umtal og jafnvel uppnám í bandarískum stjórnmálum. Harry Reid, formaður þingflokks demókrata í bandarísku öldungadeildinni varð í gær að biðjast afsökunar á ummælum, sem höfð eru eftir honum í bókinni um Barack Obama, forseta.
Í bókinni kemur fram, að í einkasamtali meðan á kosningabaráttunni stóð árið 2008, sagði Reid að Obama ætti sækjast eftir útnefningu sem forsetaefni og hann gæti sigrað vegna þess að hann væri frekar fölur afrískur Bandaríkjamaður, sem talaði ekki negramállýsku nema þegar hann kysi.
Eftir að tilvitnanir úr bókinni birtust á vef tímaritsins Atlantic í gær sendi Reid frá sér yfirlýsingu þar sem hann baðst afsökunar á að hafa notað óheppilegt orðalag. Obama sendi síðan frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagðist hafa rætt við Reit og af sinni hálfu væri málinu lokið.
Rætt við yfir 200 manns
Bókin, sem er í miðpunkti málsins, heitir Game Change og er eftir Mark Halperin, blaðamann Time Magazine, og John Heilemann, blaðamann tímaritsins New York. Hún byggir m.a. á viðtölum við yfir 200 manns, sem tengdust kosningunum, þar á meðal Obama. Öllum var heitið nafnleynd. Bókin kemur út á morgun.
Í bókinni er einnig fjallað um forsetaframboð repúblikana og þá erfiðleika, sem það lenti í eftir að hafa valið Sarah Palin sem varaforsetaefni Johns McCains. Haft er eftir Steve Schmidt, helsta ráðgjafa McCains, að Palin vissi ekkert um utanríkismál.
Þá er haft eftir Palin, að hún hafi sagt við aðstoðarmenn sína að hún vildi að hún hefði fylgst betur með þessum málum. Einnig er haft eftir henni, að hún hefði ekki fallist á að taka að sér verkefnið hefði hún vitað hvað í því fólst.
Talsmaður Palin, Meg Stapleton, dró í efa þær lýsingar af atburðarásinni, sem koma fram í bókinni og sagði að frásögn Palin af þeim væri að finna í hennar bók, Going Rogue. „Hún var þarna, þessir blaðamenn ekki."
Bjóst við sprengingu
Fram kemur í greininni í Atlantic, að Hillary Clinton, þáverandi forsetaframbjóðandi og núverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafi sett saman lítinn hóp starfsmanna sinna, sem átti að fást við hugsanleg kvennamál Bills Clintons, eiginmanns hennar.
Niðurstaðan var að orðrómur um hliðarspor Clintons væri yfirleitt rangur en þó ekki alltaf. Þannig hafi sögur um eina konu virst vera trúverðugar og eftir leynilegar rannsóknir var niðurstaðan sú, að Bill væri í ástarsambandi við hana. Næstu mánuði bjó hópurinn sig undir sprengingu þegar málið kæmist í fjölmiðla en það gerðist ekki.



































