Tekist á um réttindi samkynhneigðra í San Francisco
Þær Elizabeth Chase og Kate Baldridge vilja fá að giftast. Hér sjást þær fyrir framan alríkisdómstólinn í San Francisco. Reuters
Í fyrsta sinn er tekist á um það fyrir alríkisdómstól í San Francisco í Kaliforníu hvort einstök ríki Bandaríkjanna geti bannað hjónavígslur samkynhneigðra.
Búist er við því að málinu verði áfrýjað til æðra dómsstigs, jafnvel til hæstaréttar Bandaríkjanna, sama hver niðurstaða alríkisdómstólsins verður.
Fari málið til hæstaréttar þá mun hann dæma um framtíð hjónavígslna samkynhneigðra á landsvísu. Dómi hæstaréttar verður ekki hægt að áfrýja, að því er fram kemur á fréttavef breska ríkisútvarpsins.
Tvö samkynhneigð pör höfðuðu málið, en þau vilja snúa við svokallaðri Proposition 8 (tillögu 8), sem eru lög sem banna samkynhneigðum að ganga í hjónaband í Kaliforníu. Skv. lögunum mega aðeins gagnkynhneigð pör giftast.
Þeir sem styðja málaferlin bera þau saman við tímamótamál sem bundu enda á kynþáttaaðskilnað í bandarískum skólum og sneru við banni gegn hjónabandi fólks af ólíkum kynþætti.
Þeir vísa til stjórnarskrárinnar þar sem fjallað sé um rétt fólk til þess að ganga í hjónaband. Það að leyfa aðeins gagnkynhneigðum pörum að giftast mismuni samkynhneigðum.
Stuðningsmenn tillögu 8 segja að dómsmálið sé enn ein tilraunin til að snúa við, það sem þeir kalla, vilja fólksins. En 52% íbúa Kaliforníu studdu tillöguna í atkvæðagreiðslu sem fór fram árið 2008.
Það er nú í höndum dómarans Vaughn Walker að ákveða hvort bann gegn hjónavígslum samkynhneigðra í Kaliforníu stangist á við bandarísku stjórnarskrána.
Erlent »
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 5. mars 2009, Erlent Deilt um hjónaband samkynhneigðra
- Fimmtudagur, 30. apríl 2009, Erlent Kirkjubrúðkaup samkynhneigðra ekki leyfð strax í Svíþjóð
- Miðvikudagur, 7. júlí 2010, Erlent Styður ekki aukin réttindi samkynheigðra para
- Þriðjudagur, 17. ágúst 2010, Erlent Hjónaböndum sama kyns frestað
- Þriðjudagur, 26. maí 2009, Erlent Bann við hjónavígslu samkynhneigðra staðfest
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag



































