Leitað í rústum Port-au-Prince
Þúsundir íbúa Port-au-Prince, höfuðborgar Haíti, höfðust við undir berum himni í nótt, aðra nóttina í röð, eftir jarðskjálftann, sem reið þar yfir á þriðjudagskvöld. Fyrstu alþjóðlegu hjálparsveitirnar komu til landsins í gærkvöldi og var íslenska rústabjörgunarsveitin sú fyrsta sem þangað kom.
Borgarbúar hafa búið um sig á íþróttavöllum, götum og gangstéttum innan um lík þeirra sem fórust í jarðskjálftanum. Skólar, sjúkrahús, hótel, stjórnarbyggingar og forsetahöll landsins eru í rústum eftir skjálftann og fólk, útatað í blóði og ryki, kallar á hjálp á meðan það rótar með berum höndum í rústum húsa í leit að ástvinum. Angurvær söngur og bænir heyrast í gegnum myrkrið.
Fréttamaður AFP segir að hópur fólks hafi reynt að grafa sér leið gegnum múrsteina þar sem áður stóð barnasjúkrahús. Einn úr hópnum, Jeanwell Antoine, hélt í hönd á barni, sem var fast í rústunum og reyndi um leið að losa það.
„Það er ekki ég, sem er að grafa. Það er hönd Guðs, sem elskar lífið og leiðbeinir mér svo ég geti bjargað þessu barni," sagði hann.
Sameinuðu þjóðirnar skipuleggja leitarstarf og störf alþjóðlegra björgunarsveita á Haíti en markmiðið er að læra af reynslunni frá löndunum við Indlandshaf þar sem flóðbylgjan gekk yfir árið 2004 en þá var alþjóðlegt björgunarstarf illa samhæft og tilviljanakennt.
„Aðaláherslan er nú lögð á að finna fólk á lífi," sagði Elisabeth Byrs, talsmaður skrifstofu mannúðarmála SÞ. „Það má engan tíma missa."
Óttast er að allt að hálf milljón manna kunni að hafa látið lífið í skjálftanum en um 4 milljónir manna búa í Port-au-Prince og nærliggjandi bæjum. Höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna á Haíti hrundu og tugir starfsmanna SÞ eru látnir. Friðargæsluliðar erlendra ríkja létu einnig lífið í skjálftanum, þar af að minnsta kosti 8 Kínverjar og þrír Jórdanar.
Forsetahöllin hrundi. René Préval, forseti, var ekki staddur þar þegar skjálftinn reið yfir en hann sagðist í viðtölum hafa orðið að stíga yfir lík þegar hann kom í húsið á eftir og hann heyrði örvæntingarhróp þeirra, sem voru grafnir undir rústunum.
Erlent »
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 15. janúar 2010, Erlent 4000 fangar sluppu
- Fimmtudagur, 14. janúar 2010, Erlent Norðurlandabúa saknað á Haíti
- Miðvikudagur, 20. janúar 2010, Erlent Yfir 250 þúsund slasaðir
- Föstudagur, 6. ágúst 2010, Erlent Ákvað framboð daginn eftir jarðskjálftann
- Sunnudagur, 17. janúar 2010, Erlent Öryggisráð SÞ fundar um Haíti
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag


































