Vilja flýta fyrir ættleiðingu barna frá Haítí
Spænsk stjórnvöld hafa ákveðið að greiða fyrir því að börn frá Haítí, sem þegar var búið að veita spænskum borgurum leyfi fyrir að ættleiða, geti ferðast til Spánar eins fljótt og auðið er. Þetta var haft eftir utanríkisráðherra landsins í dag.
Samkvæmt upplýsingum úr utanríkisráðuneytinu er þar verið „að taka ákveðin skref þannig að börn frá Haítí sem þegar sé búið að veita spænskum fjölskyldum leyfi til að ættleiða geti ferðast til Spánar í ljósi hinna sérstöku aðstæðna sem nú ríkja á Haítí.“
Starfsmenn ráðuneytisins hafa fundað með þeim fjölskyldum sem lokið höfðu ættleiðingarferlinu í því skyni að veita þeim alla þá aðstoð sem möguleg er til þess að flýta því að hægt verði að ná í börnin og koma þeim til Spánar. Vinna þeir líka náið með ættleiðingarstofnunum.
Reynsla síðustu ára hefur verið sú að þegar öllum nauðsynlegum skrefum í ættleiðingarferlinu er lokið og leyfi fyrir ættleiðingunni hefur verið veitt getur engu að síður liðið margir mánuðir þar til endanlegt vilyrði fæst fyrir því að fara með börnin frá Haítí til nýrra heimkynna þeirra á Spáni.
Margar fjölskyldur víðs vegar um heiminn sem voru í miðju ættleiðingarferli reyna nú í örvæntingu að fá svör um það hvort væntanleg börn þeirra hafi lifað jarðskjálftana af og hvernig þeim reiði af í framhaldinu.
Sumir óttast að ættleiðingarumsóknir þeirra séu týndar og tröllum gefnar í kjölfar náttúruhamfaranna, sem geti valdið ómældum töfum á ættleiðingarferlinu.
Fyrr í dag fór flugvél frá Hollandi til Haítí með starfsmönnum tveggja ættleiðingarstofnana í þeim tilgangi að finna um 100 börn í Haítí á aldrinum fimm mánaða til sjö ára sem hollenskar fjölskyldur höfðu þegar fengið leyfi til að ættleiða.
Erlent »
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 25. janúar 2010, Erlent Vara við fljótfærnum ættleiðingum frá Haítí
- Þriðjudagur, 21. desember 2010, Erlent 318 börn frá Haítí á leið til Frakklands
- Mánudagur, 25. janúar 2010, Erlent Ættleiðing varasöm strax í kjölfar hamfara
- Föstudagur, 29. janúar 2010, Erlent Reynt að verja börn á Haítí
- Þriðjudagur, 26. janúar 2010, Erlent Amnesty hvetur Bandaríkin og SÞ til dáða
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja


































