Neita að bjóða upp mynd eftir Westergaard
Teikning Kurts Westergaard af Múhameð spámanni er enn og aftur komin í fréttirnar í Danmörku, eftir að stærsti uppboðsvefur Norður-Evrópu, Laurtiz.com, ákvað að bjóða ekki upp mynd eftir Westergaard af ótta við að það kynni að stefna öryggi starfsmanna uppboðshaldarans í hættu.
Tengist ekkert íslamstrú
Til stóð að bjóða vatnslitamynd eftir Westergaard upp á uppákomu til styrktar nauðstöddum á Haítí. Þrátt fyrir að myndin hafi enga vísun í íslamstrú treysti uppboðshaldarinn sér ekki til að bjóða hana upp, í ljósi árásar sem gerð var á Westergaard á nýársdag og þeirrar stöðugu hættu sem hann býr við.
Í samtali við ekstrabladet.dk segir Westergaard að sér þyki leiðinlegt að verið sé að brennimerkja sig með þessum hætti. Menningamálaráðherrann Carina Christensen hefur hvatt uppboðshaldarann til að endurskoða afstöðu sína, enda sé um óþarflega harkaleg viðbrögð að ræða.
Lifir í stöðugri hættu
Westergaard komst í heimsfréttirnar er Jyllands-Posten birti Múhameðs teikningarnar frægu haustið 2005, en mynd Westergaards af Múhameð með sprengju um hálsinn vakti sérstaka athygli og mikla reiði strangtrúaðra múslima.
Frá því árið 2008 þegar þrír múslimar voru handteknir fyrir að leggja á ráðin um að myrða Westergard, hefur hann notið stöðugrar verndar lögregluyfirvalda í Danmörku. Þann fyrsta janúar sl. réðst sómalískur maður inn í hús Westergaards vopnaður exi, en komst sá síðarnefndi naumlega undan með því að flýja inn í sérútbúið öryggisherbergi í húsi sínu.
Erlent »
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 2. janúar 2010, Erlent Árásarmaður enn á sjúkrahúsi
- Fimmtudagur, 22. apríl 2010, Erlent Teiknari sendur í frí
- Mánudagur, 7. júní 2010, Erlent Westergaard hættir að skopast
- Laugardagur, 2. janúar 2010, Erlent Réðist á danskan teiknara
- Föstudagur, 8. janúar 2010, Erlent Aftenposten birtir skopteikningar Westergaard
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja



































