Vara við fljótfærnum ættleiðingum frá Haítí

Haítísk börn á munaðarleysingjahælinu Maison Des Affaires de Dieu í Port-au-Prince þann 22. janúar. Til ... stækka

Haítísk börn á munaðarleysingjahælinu Maison Des Affaires de Dieu í Port-au-Prince þann 22. janúar. Til stendur að tugir barna af hælinu verði ættleidd til Bandaríkjanna á næstunni. TOMAS BRAVO

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hvatti í dag Evrópuþjóðir til að stilla sig um að skipuleggja hraðvirkar ættleiðingar frá Haítí. Óttast er að kerfishrunið á Haítí og þrýstingur á að bjarga börnum þaðan með ættleiðingu leiði til þess að fjöldi barna á vergangi verði fórnarlömb mansals.

„Við stöndum frammi fyrir erfiðri stöðu," hefur AFP eftir talsmanni framkvæmdastjórnarinnar, Michele Cercone. Annars vegar líti margar Evrópuþjóðir svo á að hraðvirkar ættleiðingar séu góð leið til að hjálpa börnunum á Haítí.  Hinsvegar sé það „mjög flókið að skilja stöðu barnanna þar, jafnvel þeirra sem hafa misst foreldra sína, og ættleiðing væri sennilega ekki besta lausnin núna".

Nokkur lönd hafa nú þegar sett ættleiðingaferli af stað á fullum krafti, þ.á.m. Belgía, Frakkland, Þýskaland og Holland, Spánn og auk þess Bandaríkin. Framkvæmdastjórnin virðist í málinu vera á öndverðum meiði við Spán, sem fer sem stendur með forsætið.

Utanríkisráðherra Spánar, Miguel Angel Moratinos, leitaði í dag leiða til að samræma aðgerðir þeirra þjóða sem vilja ættleiða frá Haítí. Hún sagði á föstudag að markmiðið væri að „flýta fyrir ættleiðingaferlinu í þeim málum sem þegar eru komin af stað" og að „efla aðstoð og alþjóðlega vörn fyrir börn undir lögaldri eða munaðarleysingja sem eru ein á ferð".

Allt síðan jarðskjálftinn varð á Haítí hefur farið vaxandi þrýstingurinn frá pörum í öðrum löndum sem vilja ættleiða börn um að flýta fyrir ferlinu svo þau geti bjargað munaðarleysingjum úr hinum hræðilegu aðstæðum sem eru víða á Haítí.

Barnaverndunarhópar óttast hinsvegar að kerfishrunið á Haítí geti leitt til þess að fjöldi barna sem þar eru á vergangi verði fórnarlömb mansals. Að sama skapi er hætta á því að börn sem verði ættleidd með hraði missi öll tengsl við uppruna sinn og ættingja sem enn eru á lífi.  Sameinuðu þjóðirnar lögðu um helgina ítrekaða áherslu á að pör sem vilji ættleiða flytji undir engum kringumstæðum börn frá Haítí fyrr en öll skjöl hafi verið útfyllt og frágengin bæði af forsætisráðherra landsins og af Sameinuðu þjóðunum.

 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »
Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að reka barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá myndskeið

Evruskuldabréf aftur á dagskrá
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu 20ha
Til sölu c.a.20 ha lóð í Biskupstungum. Frábær staðsetnig bæði fyrir hestafólk o...
Vaktaðu heitapottinn!
Með einföldu kerfi getur þú vaktað hita og straum á heitapottinum. Vertur áhyggj...
FÁÐU RÁÐGJAFA Í HEIMSÓKN - FRÍTT
BETRI REKSTUR, bókhald og rekstrarráðgjöf sími 77 50 200 og 519 7585 www.betrir...
Taktu hundinn með til Akureyrar
Gisting í nýstandsettum herbergjum á besta stað í bænum. Gott verð. Upplýsingar ...
 
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...
Hjálpræðisherinn samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Sigurður...
Stykkishólmur vatnshús við skipavíkurbryggju

Útboð Stykkishólmur, vatnshús við...