Dimmar horfur útlimalausra
Framtíðarhorfur þeirra Haiti-búa sem misstu útlimi í kjölfar jarðskjálftans í síðasta mánuði eru mjög óljósar. Fjöldi fólks fórst í jarðskjálftanum og hann breytti einnig lífi óteljandi annarra sem lifðu hann af.
Maga er 22 ára gömul kona sem missti báða fæturna. Þeir krömdust undir vegg sem féll á hana. Hún er þakklát fyrir þá aðhlynningu sem hún hefur hlotið.
„Læknarnir gefa mér verkjastillandi lyf ef ég þarf á þeim að halda. Ég fæ inndælingu í æð síðdegis hvern dag.“ Læknar á Haiti segja að tugir þúsunda fólks kunni að missa útlimi vegna jarðskjálftans 12. janúar síðastliðinn. Það geti gerst vegna meiðsla eða vegna þess að drep kemst í útlimina.
Hin nýja kynslóð þeirra sem misst hafa útlim eða útlimi - sem margir eru ungir að árum - mun þarfnast dýrrar meðferðar. Meðferðar sem fæstir Haiti-búar gátu búist við að fá áður en jarðskjálftinn skók þetta fátækasta ríki á vesturhveli jarðar.
Sjúkrahúsin í Port-au-Prince anna ekki álaginu, þrátt fyrir utan að komandi hjálp. Oda Mukkuaka læknir kveðst hafa áhyggjur af því að það dragi úr þjónustunni þegar hjálparstarfsmenn hverfa á braut.
„Við eigum ekki sjúkrahús. Hvíta fólkið mun fara og bara Haitibúar verða eftir. Þeir þurfa mikla hjálp, en það verður ekkert framhald. Ég vildi hafa framhald á þessu ef mögulegt er,“ sagði Oda Mukkuaka læknir.
Læknar segja að mörg börn sem hafa verið aflimuð þurfi nýja gervilimi á tveggja til þriggja ára fresti meðan þau eru að vaxa. Kostnaðurinn af því muni sliga heilbrigðiskerfi landsins næstu áratugina.
Erlent »
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 29. janúar 2010, Erlent Sjúkdómar breiðast út á Haítí
- Þriðjudagur, 16. febrúar 2010, Erlent Skólahús hrundi á Haítí
- Mánudagur, 18. janúar 2010, Erlent Fólk aflimað nánast á færibandi
- Laugardagur, 15. janúar 2011, Erlent Loka tjaldbúðum í Haítí
- Fimmtudagur, 15. apríl 2010, Erlent Yfir 600 látnir í Kína
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja


































