Refsað fyrir að beita fosfórsprengjum
Stjórnvöld í Ísrael hafa viðurkennt að tveir háttsettir foringjar í her landsins hafi verið ávíttir fyrir að beita fosfórsprengjum í hernaðinum á Gaza-svæðinu á síðasta ári.
Hvítur fosfór hefur verið notaður í sprengjur til að lýsa upp vígvöll eða mynda reykjarmökk til að gera fjandmanninum erfitt að sjá hvað væri að gerast, en bannað er að beita slíkum vopnum nálægt byggðum svæðum. Lendi fosfórinn á holdi getur hann valdið alvarlegum brunasárum.
Í skýrslu suður-afríska dómarans Richards Goldstones á vegum Sameinuðu þjóðanna var Ísraelsher sakaður um að hafa beitt fosfórsprengjum á Gaza-svæðinu í 22 daga hernaði sem hófst í desember 2008. Í svari Ísraelsstjórnar við þessari ásökun kemur fram að tveir herforingjar hafi verið ávíttir fyrir að „fara út fyrir valdsvið sitt“ með því að fyrirskipa hermönnum sínum að beita fosfórsprengjum í árás 15. janúar á síðasta ári.
Þetta er í fyrsta skipti sem Ísraelar skýra frá því að herforingjar hafi verið ávíttir í tengslum við hernaðinn á Gaza-svæðinu. Þetta er jafnframt í fyrsta skipti sem Ísraelar viðurkenna að fosfórsprengjum hafi verið beitt þannig að óbreyttum borgurum hafi stafað hætta af þeim.
Í skýrslu Goldstone voru Ísraelar og einnig liðsmenn Hamas-samtakanna sakaðir um stríðsglæpi í átökunum á Gaza-svæðinu. Hamas-samtökin hafa neitað því að þau hafi gert árásir af ásettu ráði á óbreytta borgara.
Bloggað um fréttina
-
Bragi Sigurður Guðmundsson Dæmigerð framkoma gyðinga. -
Viggó Jörgensson Skepnuskapur á hæsta stigi.
Erlent »
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 12. janúar 2009, Erlent Ísraelar á krossgötum
- Mánudagur, 29. desember 2008, Erlent Segir Hamas vera hryðjuverkasamtök
- Sunnudagur, 18. janúar 2009, Erlent Olmert: Herinn fari fljótt
- Sunnudagur, 18. janúar 2009, Erlent Flugskeytaárásir á Ísrael
- Mánudagur, 29. desember 2008, Erlent Árásir halda áfram
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja


































