Spáir 2,7% hagvexti vestra í ár og 3,8% á næsta ári
Í nýju fjárlagafrumvarpi sem stjórn Baracks Obama Bandaríkjaforseta hefur lagt fram er gert ráð fyrir því að hagvöxturinn verði 2,7% í ár og 3,8% á næsta ári. Stjórnin hyggst meðal annars verja um 100 milljörðum dala á næsta ári í aðgerðir til að stuðla að fjölgun starfa og auka útgjöldin til menntamála, samkvæmt frumvarpi til fjárlaga næsta árs. Skattaafslættir fjölskyldna með meira en 250.000 dali (32 milljónir króna) í árstekjur eiga að falla úr gildi samkvæmt frumvarpinu.
Heildarútgjöld til margra verkefna í innanríkismálum verða einnig fryst, en frystingin nær þó ekki til öryggismála eða almannatrygginga.
Að sögn Bandaríkjastjórnar er gert ráð fyrir því að heildarútgjöldin aukist um 3% á fjárhagsárinu, sem hefst 1. október, miðað við núgildandi fjárlög. Gert er ráð fyrir því að fjárlagahallinn verði 10,6% af vergri landsframleiðslu í ár en 8,3% á næsta ári. Fjárlagaskrifstofa forsetaembættisins spáir því að hallinn verði kominn niður fyrir 4% af landsframleiðslunni fyrir árið 2015.
Stjórnin hyggst m.a. lækka skatta á smáfyrirtæki og hvetja þau þannig til að ráða nýja starfsmenn eða hækka laun. Hún hyggst einnig stuðla að fjölgun starfa með auknum opinberum framkvæmdum og fjárfestingum í hreinni orku, að sögn The Washington Post. Gert er ráð fyrir því að aðgerðirnar til avinnusköpunar kosti alls um 100 milljarða dala.
Stjórnin óskar einnig eftir aukafjárveitingu að andvirði 33 milljarða dala í ár vegna þeirrar ákvörðunar Obama að senda 30.000 hermenn til viðbótar til Afganistans.
Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir því að hagvöxturinn verði 2,7% í ár og 3,8% á næsta ári eftir 2,5% samdrátt á síðasta ári. Búist er við að atvinnuleysið minnki úr 10% í ár í 9,2% á næsta ári og síðan 8,2% á þarnæsta ári.
Erlent »
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 23. febrúar 2009, Erlent Fjárlagahallinn réttur af
- Mánudagur, 1. febrúar 2010, Erlent Metfjárlagahalla spáð vestra
- Þriðjudagur, 24. febrúar 2009, Erlent Obama: Heitir því að minnka fjárlagahallann
- Mánudagur, 5. júlí 2010, Erlent Útlitið bjart í Svíþjóð
- Mánudagur, 21. desember 2009, Erlent Stefna á 8% hagvöxt
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja


































