Líklega skrifað undir í Prag

Dmitry Medvedev, forseti Rússlands, og Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, eru langt komnir með að semja ... stækka

Dmitry Medvedev, forseti Rússlands, og Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, eru langt komnir með að semja um fækkun kjarnorkuvopna að sögn The Wall Street Journal. Reuters

Bandarískir embættismenn vildu ekki staðfesta í dag fréttir um að Bandaríkjamenn og Rússar hafi náð „samkomulagi í meginatriðum“ um að minnka kjarnorkuvopnabirgðir sínar verulega. 

Dagblaðið The Wall Street Journal greindi frá því í gær að fyrsti samningurinn um kjarnorkuafvopnun stórveldanna í tvo áratugi væri í augsýn. Embættismennirnir sögðu að ekki væri hægt að fullyrða hvenær samningaviðræðum lyki.

Mike Hammer, talsmaður bandaríska Þjóðaröryggisráðsins,  vitnaði einungis í nýleg ummæli Barack Obama Bandaríkjaforseta þegar hann var beðinn að tjá sig um fréttina frá því í gær. „Eins og forsetinn sagði í stefnuræðu sinni þá eru Bandaríkin og Rússland að ljúka samningaviðræðum um samkomulag,“ sagði Hammer.

Embættismaður í Kreml í Moskvu sagði að til greina kæmi að undirrita nýtt samkomulag í vor í Prag. Þar flutti Obama einmitt lykilræðu sína um kjarnorkuafvopnun. Hann sagði að Bandaríkjamenn horfðu til Prag í þessu sambandi og að Rússar væru því ekki mótfallnir. 

Aðstoðarmaður Dmitrí Medvedevs Rússlandsforseta sagði einnig að samkomulag kunni að verða undirritað síðar í vor. Hann nefndi mars eða apríl í því sambandi. „Það er búið að skrifa meginmálið og samþykkja þótt ágreiningur sé enn um nokkur smáatriði,“ sagði Sergei Prikhodko aðstoðarmaður forsetans í utanríkismálum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »
Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að reka barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá myndskeið

Evruskuldabréf aftur á dagskrá
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
50 vinsælustu vörurnar í netverslun femin.is
Kynntu þér fjölbreytt úrval í netverslun www.femin.is og yfir 7.000 vöruliði ! ...
NISSAN PRIMERA 2002. Sjálfskiptur og nýskoðaður og ÓDÝR!
Til sölu Nissan Primera árg. 2002, ekinn 149 þúsund km. Bíllinn er í toppstandi,...
VW Polo 1,4L 2000árg. á 370þ.kr.
VW Polo Comfortline til sölu,ekinn um 123þ.km.Aðeins 2 eigendur, ný tímareim, ný...
Útilegudót óskast
Óska eftir að kaupa GAS-hitara, kælibox fyrir 220V/12V ekki mjög lítið og fleira...
 
15262 15263 og 15264 frístunda- og gestahús

Tilboð óskast í þrjú frístunda- og...
Járnabindingar
Iðnaðarmenn
Járnabindingar Járnamaður með áratugarey...
Teacher, nautical education
Grunn-/framhaldsskóla
Lofoten Maritime College Norway POSI...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...