Leynd heimildamanna bönnuð í Eþíópíu

Börn betla fyrir utan kirkju í miðborg Addis Ababa en heimilislaus maður sefur á jörðinni ...

Börn betla fyrir utan kirkju í miðborg Addis Ababa en heimilislaus maður sefur á jörðinni í bakgrunni. AP

Ný hryðjuverkalög sem sett hafa verið í Eþíópíu svipta blaðamenn þeim rétti að halda heimildamönnum sínum leyndum, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá samskiptaráðuneyti landsins.

„Hryðjuverkalögin ýta til hliðar þeim rétti blaðamanna að leyna upplýsingum um heimildamenn sína þegar þeir flytja fréttir af hryðjuverkum," hefur AFP eftir ráðherranum Shimeles Kemal. Þetta sé gert með hliðsjón af þeim miklu hörmungum sem hryðjuverk valdi.

Aðeins eitt Afríkuland skákar Eþíópíu þegar kemur að því varpa blaðamönnum í fangelsi. Ekki er lengra en nokkrir dagar síðan dálkahöfundur var fangelsaður fyrir að gagnrýna forsætisráðherra landsins.  Mannréttindasamtökin Human Rights Watch lýstu áhyggjum sínum af því, áður en frumvarp hryðjuverkalaganna var samþykkt í fyrra, að hluta þess væri beint gegn fjölmiðlum landsins.

„Samkvæmt lögunum gæti blaðamaður sem tekur viðtal við stjórnarandstöðuþingmann eða stuðningsmann vopnaðra samtaka verið sagður  „hvetja til hryðjuverka" með því einu að lýsa viðhorfum viðmælandans," segja samtökin.

Ríkisstjórn Eþíópíu skilgreinir tilraunum til uppreisna sem staðið hafa yfir árum saman í héröðunum Oromo og Ogaden sem hryðjuverkastarfsemi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Statoil vantar verkfræðinga.

Fyrirtækin slást um verkfræðingana

16:56 Verkfræðingar í Noregi vaða í atvinnutilboðum. Í gær slógust um 100 tæknifyrirtæki um nýútskrifaða verkfræðinga frá Norska tækniháskólanum (NTNU). Meira »
Ekki dugði einn krani til að lyfta fiskinum.

Risaháfur á land

16:50 Hann er engin smásmíði risaháfurinn sem pakistanskir hafnarstarfsmenn hífðu á land í Karachi í vikunni. Risaháfurinn fannst dauður í höfninni og var seldur hæstbjóðanda á 2,3 milljónir króna. Meira »

Ævisaga Pútíns skyldulesning

Pútín stefnir á sigur í forsetakosningum 4. mars næstkomandi.
16:31 Nokkrir skólar í Rússlandi hafa fengið opinber hvatningu um að fjárfesta í eintökum af bók um æsku- og skólaár Vladimir Putin, sem búist er við að snúi aftur í forsetastól í mars. Bókin ber heitið„Vladimir Putin. Foreldrar. Vinir. Kennarar“ og kom út árið 2004. Meira »

Refsilaus mynd með nasistafána

Heillandi félagsskapur.
15:36 Hópur af bandarískum hermönnum, sem lét smella af sér mynd með vopn á lofti við hliðina á nasistafána, hefur fengið aðvörun fyrir athæfi sitt en verður ekki refsað. Þetta kom fram í tilkynningu frá bandaríska hernum í gær. Meira »

Vill herskyldu fyrir konur

Espen Barth Eide, varnarmálaráðherra Noregs.
15:13 Espen Barth Eide, varnarmálaráðherra Noregs, segist íhuga að leggja til að konur gegni herskyldu til jafns við karla. Hann segir að eðli hermennsku hafi breyst og nú skipti þættir á borð við að geta hugsað kerfisbundið meira máli en líkamlegur styrkur. Meira »

Átök á götum Aþenu

Lögreglumaður í óeirðabúningi sparkar í liggjandi mótmælanda í Aþenu í dag.
15:40 Átök brutust út í dag í miðborg Aþenu, höfuðborg Grikklands, á milli mótmælenda og lögreglumanna. Mikil reiði ríkir í samfélaginu vegna ákvörðunar stjórnvalda að láta undan þrýstingi ráðherra í evruríkjunum og leggja blessun sína yfir frekari aðhaldsaðgerðir. Meira »

Þrír látnir og tveir særðir eftir gíslatöku

15:33 Þrír eru látnir og tveir alvarlega særðir eftir gíslatöku á gistisvæði fyrir húsbíla á Flórída seint í gærkvöldi.  Meira »

Verkföll fyrir kjötkveðjuhátíð

Slökkviliðsmenn, fangaverðir og lögreglumenn mótmæla nú í Ríó.
15:07 Hundruð lögreglu- og slökkviliðsmanna lögðu niður vinnu í Ríó í Brasilíu í dag og kröfðust betri kjara. Aðeins er ein vika þar til kjötkveðjuhátíðin hefst en herlögregla á svæðinu hefur tilkynnt að allar sveitir hennar starfi eðlilega. Meira »

Ungir Rússar taka eigið líf

Sjálfsmorðstíðni ungmenna í Rússlandi er há.
14:50 Sjálfsmorðstíðni rússneskra ungmenna fer stöðugt vaxandi og er næstum því þrefalt hærri en meðaltalstölur fyrir heiminn sýna. Fjögur þúsund ungir Rússar á aldrinum 15-19 ára taka eigið líf á hverju ári. Meira »

Lögsæki ekki dómara

Stuðningsmaður Garzóns sýnir myndir af meintum fórnarlömbum Franco-stjórnarinnar.
14:32 Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna lýsti í dag yfir áhyggjum sínum vegna sakfellingar spænska rannsóknardómarans Baltasar Garzón sem dæmdur hefur verið fyrir að misnota valdheimildir sínar við rannsóknir á stjórnarglæpum frá Franco-tímanum. Meira »

Fraus í hel

14:40 Rúmlega fertug kona fannst frosin í hel í helli í nágrenni Rómar á Ítalíu í dag en talið er að hún hafi leitað skjóls í hellinum í fimbulkulda. Meira »

Segir minni tiltrú á SÞ

Abdullah, konungur Sádi-Arabíu.
14:02 Abdullah, konungur Sádi-Arabíu, segir tiltrú heimsins á Sameinuðu þjóðunum hafa minnkað eftir að öryggisráði SÞ mistókst að fá samþykkta ályktun um að fordæma aðgerðir sýrlenskra stjórnvalda gagnvart óbreyttum borgurum. Meira »

Seldi CIA gögn um rússneskar eldflaugar

Eldflaug.
14:00 Rússneskur geimverkfræðingur var dæmdur í 13 ára fangelsi í dag fyrir að selja bandarísku leyniþjónustunni leynilegar upplýsingar um eldflaugar Rússa. Meira »

Spilling verður N-Kóreu að falli

Kim Jong-Un yngsti sonur Kim Jong-Il og nýr leiðtogi Norður-Kóreu heilsar hermönnum.
12:13 Elsti sonur Kim Jong-Il heitins segir að mútur og spilling séu allsráðandi í Norður-Kóreu og muni verða ríkinu að falli. Tölvupóstsamskipti hans við japanskan blaðamann voru opinberuð í dag. Hann segir unga N-Kóreubúa reyna að fara á svig við ofríkið og enginn hafi stjórn á hernum. Meira »

Leggja niður störf og mótmæla

Mótmælendur komu saman við gríska þinghúsið í gær.
11:36 Tveggja sólarhringa verkfall hófst í Grikklandi í dag. Verkalýðsfélög standa fyrir aðgerðunum en verið er að mótmæla þeim aðhaldsaðgerðum sem grískir stjórnmálamenn hafa lagt blessun sína yfir vegna þrýstings frá alþjóðlegum lánardrottnum. Meira »

Fræg bygging eldi að bráð

La Cite Radieuse
13:26 Um tvö hundruð slökkviliðsmenn í frönsku borginni Marseille börðust í nótt við eldsvoða í íbúðarblokkin La Cite Radieuse en blokkin er eitt þekktasta verk fransk/svissneska arkitektsins Le Corbusier. Meira »

Enn gýs í Eldhringnum myndskeið

Eldgos í Indónesíu
11:46 Brennheit aska spýttist tvo kílómetra upp í loftið þegar eldgos hófst í Lokon-eldfjalli á eyjunni Sulawesi í Indónesíu í morgun. Í Meira »

Tvær bílasprengjur í Sýrlandi myndskeið

Bílsprengjur í Sýrlandi
11:12 Tvær kraftmiklar bílasprengjur sprungu í Aleppo, næststærstu borg Sýrlands, í dag. Í ríkisfjölmiðlum í Sýrlandi kom fram að 25 hefðu látist í sprengingunum og 175 særst. Fram kom að fyrri sprengingin hefði verið sjálfsmorðsárás á lögreglustöð. Síðari sprengingin hefði verið fyrir framan herstöð. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Grafarholtið 5 herbergja íbúð.
Fasteignasalan Bær og Haraldur A. Haraldsson löggiltur fasteignasali, kynna til ...
MMC Pajero 2003 7manna diesel 2,5. 5 gíra
MMC Pajero 2003 7manna diesel 2,5. 5 gíra. ek 188þús km Nýlegir gormar og fóðri...
Einyrki-LaunaUppgjör.Launaseðlar í Excel
Töflukerfi í Excel fyrir LaunaUppgjör,Launaseðla, Skilagr RSK og Lífeyrissj. Upp...
Frítt verðmat.
Ertu í söluhugleiðingum? Hafðu þá samband. Þú færð frítt verðmat hjá mér. hall...
 
Bókaveisla

Bókaveisla Hinni landsfrægu og margrómu...
Forstöðumaður þekkingarmiðstöðvar sjálfsbjargar
Stjórnunarstörf
Forstöðumaður Þekkingarmiðstöðvar...
Framhald uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Aðalfundur
Félagsstarf
      ...