Washington lömuð vegna snjóa
Blindbylur hefur gengið yfir austurströnd Bandaríkjanna í dag og í gær og valdið miklum truflunum, ekki síst í höfuðborginni Washington þar sem búist er við að milljónir manna muni halda sig innivið á næstu dögum.
Veðrið teygir sig allt frá Indiana til Pennsylvaníu og inn í hluta New York ríkis og Norður-Karólínu. Í þessum ríkjum er ekkert ferðaveður og hefur flugvöllum verið lokað og víða verið lýst yfir neyðarástandi. Að sögn veðurfræðinga verða Washington og nágrenni hennar verst úti í storminum og er fólki ráðlegt að fara ekki út úr húsi þar sem það geti verið lífshættulegt. Fólk er vinsamlegast beðið um að hjálpa björgunarsveitum með því einfaldlega að halda sig frá vegakerfinu.
Allt að 5 daga innilokun
Spáð hefur verið allt að 76 cm jafnföllnum snjó í Washington yfir helgina. Þar með verður 88 ára gamalt met slegið því ekki hefur snjóað jafn mikið á svæðinu síðan árið 1922 í hinum svonefnda „Mikla Knickerbocker stormi" sem kallast svo vegna þess að Knickerbocker leikhúsið í Washington hrundi undan snjóþyngslum svo nærri 100 manns létust.
Vetur eru sjaldan snjóþungir í Washington og er hluti af þeirri hættu sem stafar af veðrinu sagður stafa af því að íbúar í borginni, sem eru um 8 milljónir talsins, hafi hvorki þekkingu og reynslu né útbúnað til að bregðast við svo miklum snjó, ólíkt íbúum norðlægari ríkja Bandaríkjanna.
Strætisvagnaferðir hafa legið niðri í höfuðborginni síðan í gær og eru flestar götur sagðar ófærar. Þá hefur yfir 40 lestarstöðvum verið lokað, sem þýðir að flestir íbúar úthverfa Washington komast hvorki lönd né strönd. Margir ættu þó að geta setið storminn af sér því matvörur voru hamstraðar í verslunum í gær.
Í fjölmiðlum var fólk varað við því að það þyrfti að búa sig undir allt að 5 daga innilokun. Washington hefur því verið eins og draugaborg síðan síðdegis í gær.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Washington lömuð vegna snjóa/svo sleppum við !!!!! -
Hilmar Sigurðsson Skyldi Al Gore vita af þessu? -
Sigurbjörg Eiríksdóttir Ja hérna. -
Ómar Ragnarsson Blíðuveður á Grænlandi.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 3. mars 2011, Erlent Franskur eldri borgari skaut 3 til bana
- Miðvikudagur, 27. janúar 2010, Erlent Sprenging í Belgíu
- Fimmtudagur, 24. desember 2009, Erlent Mannskætt ferjuslys á Filippseyjum
- Mánudagur, 30. nóvember 2009, Erlent Yfirburðasigur forseta í Hondúras
- Föstudagur, 5. febrúar 2010, Erlent Hálft tonn af sprengiefni finnst í Portúgal
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































