Campbell varði Blair í viðtali

Alistair Campbell umkringdur fréttamönnum. stækka

Alistair Campbell umkringdur fréttamönnum. Reuters

Alastair Campbell, sem var blaðafulltrúi Tony Blair, fyrrum forsætisráðherra Bretlands,  um tíma, varð klökkur í viðtali við BBC í dag þegar hann varði þá ákvörðun fyrrum vinnuveitanda síns að taka þátt í innrásinni í Írak árið 2003. 

Campbell vísaði því á bug í viðtalinu, að Blair hefði afvegaleitt breska þingið með fullyrðingum um að Saddam Hussein, þáverandi forseti Íraks, byggi yfir gereyðingarvopnum. Sakaði Campbell fjölmiðla um ófrægingarherferð og að reyna að jafna sakir frekar en að leiða sannleikann í ljós.

Rannsóknarnefnd á vegum breska þingsins er nú að störfum og á að rannsaka aðdraganda Íraksstríðsins. Bæði Campbell og Blair hafa borið vitni fyrir nefndinni en nefndarstarfið hefur endurvakið umræðu í Bretlandi um hvers vegna breska leyniþjónustan taldi að Írakar gætu beitt efnavopnum með litlum fyrirvara. Í ljós kom síðar að Írakar bjuggu ekki yfir slíkum vopnum þegar innrásin var gerð.

Campbell sagði í viðtalinu í dag, að forsætisráðherrann hefði ekki afvegaleitt þingið. Þegar Campbell var spurður nánar hvers vegna Blair hefði sagt, að enginn efi léki á að Írakar réðu yfir gereyðingarvopnum var greinilegt að hann klökknaði: „Ég hef þurft að ganga í gegnum ýmislegt vegna þessa," svaraði Campbell. Hann tók sig síðan taki og sagði: „Tony Blair er að mínu áliti algerlega heiðvirður maður. Og ég held einnig, að það sem við höfum þurft að þola vegna þessa... þessi stöðuga ófrægingarherferð... Ég held að eins og málið hefur þróast er ljóst að menn hafa ekki áhuga á að leiða sannleikann í ljós. Ég held að þið allir (í fjölmiðlunum) hafi meiri áhuga á að jafna sakirnar og koma ykkar skoðunum á framfæri."  

Campbell bætti við, að hann bæðist afsökunar á því að láta tilfinningarnar í ljós með þessum hætti. „En ég vann við hliðina á Tony, ég veit að þetta var þungbær ákvörðun og ég veit að við undirbjuggum hana gaumgæfilega."  

Hann viðurkenndi, að Íraksstríðið og afleiðingar þess væru þungbærar fyrir marga en 179 breskir hermenn hafa látið lífið og um það bil 100 þúsund óbreyttir íraskir borgarar að mati óháðra samtaka frá því innrásin var gerð í mars 2003.  

„En ástæðan fyrir því að fólk er stöðugt að ræða um málið er að þeir sem eru ósammála þeirri ákvörðun sem Tony Blair tók vilja ekki að hin hlið málsins komi fram." 

Viðtalið í BBC

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »
Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að reka barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá myndskeið

Evruskuldabréf aftur á dagskrá
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
ÍSLENSKT, JÁ TAKK
Sérsmíðum beina stiga, efni, hæð og halli eftir óskum hvers og eins. Mex ehf. Sí...
Bókhald
Öll almenn bókhaldsþjónusta. Ársreikningar, skattar. Fyrirtæki, einstaklingar...
Coleman Bayside 12" fellihýsi árg. 2003 til sölu
Coleman Bayside 12 " fellihýsi árg. 2003 til sölu. Borðkrókurinn er útdraganleg...
Socata TB-10
Til sölu Socata TB-10 árgerð 1999. Vélin er staðsett á Íslandi og með gilt lofth...
 
Bílar ríkiskaup - tilboð óskast

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
12836 fellahverfi útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Forval fit

Mynd af auglýsingu ...