Ekkert spurst til konunnar

Miðborg Osló. Konungshöllin í bakgrunni. stækka

Miðborg Osló. Konungshöllin í bakgrunni. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Norsk kona af pakistönskum ættum, 26 ára gömul, sem var rænt fyrir fimm sólarhringum trúði vinkonu sinni fyrir því að hún vildi flytja að heiman. Konan hringdi í lögreglu þar sem hún var innilokuð í farangursgeymslu bíls og sagði að sér hefði verið rænt. Ekkert hefur til hennar spurst síðan.

Konan mun hafa sagt vinkonu sinni að hún vildi flytja að heiman og taka upp nýtt nafn. Hún vissi þó ekki hvernig hún ætti að fara að því, að sögn Verdens Gang.  Þá greindi konan vinkonu sinni frá því að foreldrar hennar hafi reynt að sannfæra hana um að giftast pakistönskum manni, en það vildi konan ekki. 

Að sögn VG mun eldri systir konunnar neita því að fjölskyldan hafi beitt hana þrýstingi. Sagt er að konan sem er saknað hafi átt leynilegan unnusta í Noregi. Lögregla hefur yfirheyrt hann sem vitni. 

Konan var á leið til vinnu sinnar síðastliðinn miðvikudag en hún starfaði í verslun í miðborg Oslóar. Í samtali sínu við lögregluna mun konan hafa nafngreint 28 ára gamlan Norðmann af pakistönskum ættum sem hún grunaði um að standa að baki ráninu.

Sagt er að sá sem konan nafngreindi starfi sem leigubílstjóri og að hann hafi borið óendurgoldna ást til hinnar horfnu í brjósti sér.  Maðurinn mun hafa neitað því að eiga nokkra sök á ráninu. Hann var settur í gæsluvarðhald í fjórar vikur á föstudaginn var. 

Aftenposten greinir frá því að lögreglan hafi fundið minnismiða hjá þeim grunaða. Svo virðist sem þar hafi hann skráð hjá sér það sem hann þyrfti til mannránsins, svo sem handjárn, lambhúshettu og sterkt límband. 

Mögulegt vitni að mannráninu hefur gefið sig fram við lögregluna. Það kveðst hafa séð bíl með opna farangursgeymslu og mann sem dró konu á eftir sér. Bíllinn stóð utan við verslun nálægt stoppistöð strætisvagna þar sem konan ætlaði að taka vagn. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »
Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að reka barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá myndskeið

Evruskuldabréf aftur á dagskrá
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Er tölvan hæg eða biluð, ódýrari tölvuaðstoð
Þjónusta fyrir þig þegar þér hentar! Tek að mér að uppfæra, rykhreinsa og laga ...
BÍLASALA GUÐFINNS
Frúin hlær í betri bíl! Bílar fyrir alla - Öll verð. Guðfinnur bíl fyrir þig. Bí...
Fellihýsi til sölu
Palomino fellihýsi árg 2006. Fortjald fylgir. Upplýsingar í síma 8927619. frimol...
Til sölu 20ha
Til sölu c.a.20 ha lóð í Biskupstungum. Frábær staðsetnig bæði fyrir hestafólk o...
 
Samkoma - salt
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grensáskirkju Samk...
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...