Óeirðir í fangelsi á Jamaíka

Blóðugar óeirðir urðu í fangelsi í Kingston, höfuðborg Jamaíka í dag. 36 fangar og 9 fangaverðir eru særðir eftir átökin.

Hermenn og óeirðalögregla notuðu kylfur og táragas til að koma böndum á ástandið. „Fangarnir voru að bregðast við aðgerðum fangelsisstjórnarinnar og lögreglustjóra til að stemma stigu við smygli inn í fangelsið," segir öryggismálaráðherrann Dwight Nelson.

Hann sagði aðgerðirnar beinast gegn smygli  farsímum og fíkniefnum inn fyrir fangelsismúrana. Önnur ástæða óeirðanna var skortur á vatni í fangelsinu. Nauðsynlegt hefur verið að skammta vatn á Jamaíka undanfarið vegna langvarandi þurrka. Ráðherrann segir hinsvegar að fangarnir hafi talið að þeim væri neitað um að fá vatn.

Þeim fangavörðum sem slösuðust í óeirðunum hefur verið sleppt af sjúkrahúsi en a.m.k. 6 fangar eru enn undir læknishöndum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Skrúðgangan var af veglegri gerðinni.

Tóku forskot á sæluna í Bonn

Í gær, 19:44 Þar eð stutt er í hápunkt kjöthátíðar í Þýsklandi þýðir það aðeins eitt. Stutt er í veglegar skrúðgöngur á borð við þær í Köln, Düsseldorf, Aachen og Mainz. Í Bonn tóku menn þó forskot á sæluna en þar var farin skrúðganga í dag. Meira »
Mótmæli voru víðs vegar um Evrópu í dag.

Fjöldamótmæli vegna ACTA

Í gær, 18:38 Tugir þúsunda mótmæltu í Þýskalandi í dag gegn umdeildum lögum sem nefnd eru ACTA (e. Anti-Counterfeiting Trade Agreement) og eru gegn brotum á höfundarrétti, sem talin eru geta heft frelsi á netinu. Meira »

Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið myndskeið

Sýrlenskur flóttamaður ber stjórnvöldum söguna illa
Í gær, 22:00 Sýrlenskir flóttamenn segja að fréttaflutningur af ástandinu í landinu sé aðeins dropi í hafið, svo slæmt sé ástandið. Töluverður fjöldi af myndböndum hafa borist af ofbeldi hersins gegn almennum borgunum, en ekki hefur verið hægt að staðfesta að myndböndin séu raunsönn. Meira »

Veður hamlar aðgerðum á strandstað myndskeið

Snjór hamlar aðgerðum á strandstað
Í gær, 17:53 Kuldakastið í Evrópu hefur haft sín áhrif á aðgerðir á strandstað skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Mikill snjór á ítölsku eyjunni Giglio hefur hamlað björgunarmönnum í að dæla úr skipinu 2.300 tonnum af olíu sem eru í tönkum skipsins. Meira »

Fimm blaðamenn handteknir

Í gær, 16:03 Breska lögreglan handtók í dag fimm blaðamenn hjá breska blaðinu The Sun. Handtaka er að sögn lögreglunnar liður í rannsókn hennar á greiðslum blaðsins til lögreglu- og embættismanna fyrir upplýsingar. Meira »

Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu myndskeið

Suu Kyi tekið sem rokkstjörnu
Í gær, 20:06 Þúsundir þyrptust út á götu í Búrma til að taka á móti leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Búrma, Aung San Suu Kyi. Erlendir fjölmiðlar greina frá að henni hafi verið tekið eins og rokkstjörnu, þvílíkt voru fagnaðarlætin. Meira »

Barist um skatta og eyðslu

Í gær, 17:22 Baráttan um forsetaembættið í Bandaríkjunum er hafinn og meðan forsetaframbjóðendur Repúblikanaflokksins nýta hvert tækifæri í forvali flokksins til þess að gagnrýna Barack Obama, forseta Bandaríkjanna hefur forsetinn ákveðið að snúa vörn í sókn og markað stefnu sína í fjárlögum komandi árs. Meira »

Lét sér fátt um finnast við strandið

Skemmtiferðaskipið Costa Concordia marar nú í hálfu kafi við eyjuna Giglio.
Í gær, 15:44 Myndband, sem tekið var á ítalska skemmtiferðaskipinu Costa Concordia, skömmu eftir að það steytti á skeri 13. janúar síðastliðinn, sýnir að skipstjóri skipsins lét sér fátt um finnast við strandið. Lögregla hyggst nota upptökuna við rannsókn sína. Meira »

Hóta vesturlöndum og Ísrael

Í gær, 15:34 Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans sagði í dag að heimurinn muni fljótlega fá vitneskju um framfarir í kjarnorkuáætlun Írans en Bandaríkin og ríki Evrópusambandsins hafa hert þvinganir á Íran vegna rannsókna sinna á sviði kjarnorku. Meira »

Hvatt til fjöldamótmæla á Spáni

Leiðtogar tveggja stærstu verkalýðsfélaga á Spáni; Ignacio Fernandez Toxo hjá CCOO og Candido Mendez hjá ...
Í gær, 14:37 Tvö stærstu verkalýðsfélög Spánar hvetja til fjöldamótmæla eftir rúma viku, sunnudaginn 19. febrúar. Mótmæla á niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Íranar fagna byltingarafmæli myndskeið

Íranar fagna byltingarafmæli
Í gær, 15:08 Þúsundir Írana fagna nú 33 ára afmæli íslamsbyltingarinnar í landinu, en hún var gerð árið 1979. Fólkið veifaði fánum landsins og hampaði stórum myndum af leiðtoga byltingarinnar, Ayatollah Ruhollah Khomeini og arftaka hans Ayatollah Ali Khamenei. Meira »

Gingrich og Santorum herja á Obama

Rick Santorum.
Í gær, 12:56 „Við munum ekki biðjast afsökunar og hverfa frá þeim gildum okkar, sem gera land okkar svo stórkostlegt, til þess að geta unnið sigur í nóvember“ sagði Rick Santorum, frambjóðandi í forvali Repúblikana til forsetaframboðs, á ráðstefnu í morgun. Meira »

Barist um bandarísku sálina

Mitt Romney.
Í gær, 12:45 Mitt Romney, frambjóðandi í forvali Repúblikana til forsetaframboðs, lofar því að sameina Repúblikana og að sigra Barack Obama. Hann segir kosningarnar vera „baráttu um bandarísku sálina“. Forkosningar fara fram í Maine-ríki í dag. Meira »

Dóná fraus í nótt

Skip siglir í klakahröngli á Dóná í gær. Áin er nú frosin á um 11 ...
Í gær, 11:29 Yfirborðsvatn Dónár fraus í nótt, skammt frá höfninni í Silistra í Búlgaríu. Þetta er í fyrsta skipti í 20 ár sem áin frýs.  Meira »

Saadi Gaddafi boðar byltingu

Saadi Gaddafi á velmektarárum sínum með keppnistreyju sína.
Í gær, 09:49 Saadi Gaddafi, einn sona Múammars Gaddafi heitins, fyrrum forseta Líbíu, segir að ný bylting kraumi meðal Líbíumanna sem séu óánægðir með nýja stjórnarhætti í landinu. Hann heitir því að snúa aftur til síns heima, en hann flúði til Níger. Meira »

Ásaka Breta um hervæðingu

Í gær, 12:42 Utanríkisráðherra Argentínu, Hector Timberman, hefur sakað bresk stjórnvöld um að koma fyrir kjarnorkuvopnum við Falklandseyjar. Stjórnmálamenn, sérstaklega í Argentínu, hafa undanfarið haft sig nokkuð í frammi vegna deilunnar um yfirráð yfir Falklandseyjum. Meira »

Segja al-Qaeda bera ábyrgð í Sýrlandi

Ungir drengir vopnaðir byssum og sprengjum sjást á al-Qaeda æfingu.
Í gær, 10:55 Íraskir al-Qaeda liðar eru sagðir bera ábyrgð á tveimur sprengjum sem nýlega sprungu í borginni Damaskus í Sýrlandi. Að auki eru samtökin talin vera ábyrg fyrir sprengjunum tveimur sem sprungu í sýrlensku borginni Aleppo í gær með þeim afleiðingum að 28 létu lífið. Meira »

Rómarborg snæviþakin myndskeið

Enn snjóar í Evrópu
Í gær, 09:34 Ekkert lát er á frosti og snjókomu á meginlandi Evrópu og liggur nýfallin mjöll eins og hvítt teppi yfir Rómarborg, en það mun afar fátíð sjón. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
2008 SUBARU LEGACY 4x4 yfirtaka á láni + 300 þús
Er með flottan og vel með farinn Subaru Legacy 4x4 sjálfskiptur ekinn 67.000. 2...
Canon Rebel 400D
Til sölu. Tvær linsur. Verð kr. 45.000. sími 6943636...
Heil/parta nudd sniðið að þínum þörfum.
Lúxus dekur þar sem þú velur áherslusvæði t.d. herðar, herðablöð, háls, axilir, ...
Uppþvottavél
Til sölu ca. 8-9 ára Fagor uppþvottavél í góðu lagi verð 18 þús er í Rvk. s. 659...
 
Samkoma
Félagsstarf
Kaffi, sunnudag kl.16 Fyrir samko...
Stúkan hamar
Félagsstarf
l HAMAR 6012020719 III...
Atvinna
Önnur störf
Landsfulltrúi Ungmennafélag Í...
Aðalfundur
Fundir - mannfagnaðir
Aðalfundur Félags sj...