Vilja skaðabætur frá járnbrautum
Ungversku járnbrautirnar eru sakaðar um að hafa flutt 437.000 ungverska gyðinga í tortímingarbúðirnar í Auschwitz. Reuters
Hópur fólks sem lifði af helför nasista gegn gyðingum, auk afkomenda annarra sem einnig komust af, hefur nú höfðað mál í Bandaríkjunum gegn ungversku ríkisjárnbrautunum. Járnbrautafélagið er sakað um þátttöku í að flytja gyðinga í útrýmingarbúðirnar í Auschwitz.
Málið var höfðað fyrir héraðsdómstóli í Chicago á þriðjudaginn var. Alls standa 95 manns að málsókninni. Fólkið krefst samtals 1,24 milljarða bandaríkjadala (159 milljarða ÍKR) í skaðabætur.
Samkvæmt stefnunni útvegaði ungverska járnbrautafélagið „vitandi vits“ járnbrautalestir til að flytja 437.000 Gyðinga á aftökustað sinn í Auschwitz frá því í mars og fram í október árið 1944.
Starfsmenn járnbrautafélagsins eru sakaðir um að hafa „rænt eigum stefnenda, verðmætum, erfðagripum, verðbréfum, reiðufé og skartgripum úr farangri stefnenda.“
Stefnendur benda á að hefði járnbrautafélagið ekki útvegað lestar til flutninganna hefði ekki verið hægt að flytja hundruð þúsunda ungverskra gyðinga í tortímingarbúðirnar.
Krafist er 240 milljóna dollara skaðabóta vegna stolinna verðmæta og milljarðs dollara í táknrænar skaðabætur fyrir svívirðilega þátttöku sakborninganna í þjóðarmorðinu.
Erlent »
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 18. desember 2009, Erlent Gyðingar fordæma stuldinn í Auschwitz
- Sunnudagur, 24. október 2010, Erlent Ný skýrsla um helförina
- Mánudagur, 20. apríl 2009, Erlent Ahmadinejad gestur SÞ á Helfarardeginum
- Mánudagur, 20. apríl 2009, Erlent Frakkar: Óréttlætanlegur hatursáróður
- Þriðjudagur, 18. ágúst 2009, Erlent Nasistar ráku vændishús í fangabúðunum
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja


































