Segir áætlun ESB íburðarlitla
George Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, gagnrýnir viðbrögð Evrópusambandsins við efnahagskrísu landsins og segir áætlun sambandsins bæði alltof íburðarlitla og hæggenga. Þetta kemur fram á vef breska ríkisútvarpsins.
Papandreou tjáði ráðherrum ríkisstjórnar sinnar á fundi sem sjónvarpað var beint í Aþenu að Evrópusambandið skorti samhæfingu og dregið væri úr trúverðugleika Grikklands.
Á fundi í Brussel í gær bauðst Evrópusambandið til þess að styðja við Grikkland, en ekki voru gefnar upp neinar ítarlegar upplýsingar um það í hverju aðstoðin myndi nákvæmlega felast.
Efnahagskrísan í Grikklandi hefur sett mikinn þrýsting á evruna og hefur orðið til þess að gengi hennar hefur veikst.
Við komuna heim til Grikklands sagði Papandreou að þó Grikkland hefði fengið stuðningsyfirlýsingu í Brussel þá hefðu frestir og ósamhljóðar yfirlýsingar síðustu mánaðar gert hlutina enn verri.
Papandreou sakaði stofnanir Evrópusambandsins, ráðherraráðið og fulltrúa sambandsins í Evrópska seðlabankanum um skort á samhæfingu.
Í kjölfar fundarins í Brussel í gær létu leiðtogar innan Evrópusambandsins hafa eftir sér að grísk stjórnvöld verði að taka efnahag landsins fastari rökum og lækka fjárlagahallann um 4% á þessu ári.
Fjárlagahallinn á Grikklandi stefnir í 12,7% á þessu ári sem er fjórum sinnum meira en leyft er á evrusvæðinu. Papandreou lagði eftir fundinn áherslu á að Grikkir væru reiðubúnir að taka þau nauðsynlegu skref sem krafist er til þess að ná fjárlagahallanum niður. Sem lið í því hefur ríkisstjórnin tilkynnt að laun opinberra starfsmanna verði fryst og eftirlaunaaldur hækkaður. Þau áform vöktu hörð viðbrögð Grikkja sem efndu til verkfalls í gær.
Fjármálaspekingar benda á að Þýskaland, sem stendur mjög sterkt innan evrusvæðisins, gæti veitt Grikkjum aukna aðstoð með því að kaupa grísk ríkisskuldabréf eða tryggja lánalínur.
Leiðtogar Evrópusambandsins virðast hika við að kalla eftir aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn til handa Grikklandi enda mynd slíkt hafa neikvæða áhrif á ímynd evrunnar.
Erlent »
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 22. október 2010, Erlent Flestir ólöglegir í Grikklandi
- Sunnudagur, 7. mars 2010, Erlent Leiðtogar Evrópu vilja aðstoða Grikki
- Miðvikudagur, 3. mars 2010, Erlent Frekari skattahækkanir væntanlegar
- Miðvikudagur, 10. febrúar 2010, Erlent Grikkir mótmæla sparnaði
- Föstudagur, 11. desember 2009, Erlent Grikkir ætla ekki að leita á náðir AGS
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja


































