Dalai Lama hittir Obama í óþökk Kínverja
Kínverjar eru ósáttir við fund Dalai Lama, andlegs leiðtoga Tíbeta með Barack Obama forseta Bandaríkjanna í dag en áður höfðu þeir kvatt Obama til að hundsa hinn útlæga Tíbeta.
Bandarísk yfirvöld segja Obama einungis hafa hitt Dalai Lama sem andlegan leiðtoga, þó hann hafi einnig viljað hlera Lama vegna þess hve hægt samskipti hans við kínversk yfirvöld ganga.
„Dalai Lama nýtur virðingar á alþjóðavísu sem trúarleiðtogi. Hann er talsmaður tíbetskra réttinda. Forsetinn væntir þess að eiga með honum uppbyggjandi fund,“ sagði talsmaður Bandaríkjastjórna.
Kínverjar tóku aftur upp viðræður við fulltrúa Dalai Lama í byrjun þessa árs eftir að viðræður höfðu legið niðri síðan í nóvember 2008. Enn sem komið er hefur lítið komið út úr endurnýjuðum viðræðum og óttast margir útlægir Tíbetar að Kínverjar bíði einungis eftir að Dalai Lama verði allur. Leiðtogi Tíbeta í viðræðum við Kínverja sagði Dalai Lama myndu ræða málefni Tíbeta og Kínverja í von um að finna lausn sem hentaði báðum þjóðum.
Stuðningsmenn Dalai Lama fögnuðu honum vel þegar hann kom til Hvíta hússins, en Dalai Lama hefur nú hitt alla sitjandi forseta frá því hann átti fund með George H. W. Bush árið 1991. Þá mun Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna fljótlega funda með hinum aldna trúarleiðtoga.
Hljótt var þó um fundinn miðað við aðra sambærilega fundi sem fara fram í Hvíta húsinu. Engar myndatökur voru leyfðar og fór fundurinn ekki fram í skrifstofu forsetaembættisins eins og venja er heldur í framkvæmdastjórnarherbergi. Er talið að þetta hafi átt að draga úr reiði kínverskra yfirvalda vegna fundarins sem vilja ekki að Dalai Lama sé í samskiptum við erlend yfirvöld.
Ríkisstjórn Obama hefur sagst leggja kapp á að bæta samband Bandaríkjanna og Kína, og samvinnu í baráttunni við efnahagsástand i heiminum og loftslagsbreytingar. Þykir nýlegur 6,4 milljarða dala vopnasölusamningur Bandaríkjamanna við Tævana þó stinga nokkuð í stúf við þær yfirlýsingar.
Erlent »
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 15. desember 2009, Erlent Fellibylur gekk yfir Fiji eyjar
- Miðvikudagur, 5. maí 2010, Erlent Skipulagði barnaníðsferðir
- Þriðjudagur, 22. júní 2010, Erlent Mikill niðurskurður í Bretlandi
- Fimmtudagur, 27. ágúst 2009, Erlent Josef Motzfeldt nýr formaður Vestnorræna ráðsins
- Mánudagur, 23. ágúst 2010, Erlent Ákærð vegna eldsvoða á fæðingardeild
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja


































