Bróðir Osborne falsaði lyfseðil

George Osborne er bróðir læknisins sem grunaður er um að hafa falsað lyfseðil. stækka

George Osborne er bróðir læknisins sem grunaður er um að hafa falsað lyfseðil. STEFAN WERMUTH

Breskur læknir hefur verið fundinn sekur um að falsa lyfseðil í þeim tilgangi að útvega vinkonu sinni verkjalyf, en hún er fíkniefnaneytandi. Læknirinn heitir Adam Osborne og er bróðir George Osborne sem er talsmaður Íhaldsflokksins í ríkisfjármálum.

George Osborne verður væntanlega fjármálaráðherra Bretlands sigri Íhaldsflokkurinn í næstu kosningum. Hann er læknir líkt og Adam, bróðir hans.

Adam Osborne viðurkenndi að hafa gefið konunni lyfin, en neitar því að hafa brotið reglur. Hann sagðist hafa hitt konuna á bílastæði og í framhaldi af því farið á sjúkrahús í þeim tilgangi að útvega henni lyf. Konan hefði þjáðst af ofskynjunum eftir að hafa neytt kókaíns. Um hefði verið að ræða bráðatilvik.

Sjúkrahúsið neitaði að afhenda Osborne lyfin, en hann fór þá í lyfjaverslun og skrifaði þá annan lyfseðil þar sem ekki kom fram rétt nafn sjúklingsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Reyna að losna við Grikki

Í gær, 23:50 „Það er aðeins ein leið til þess að túlka nýjar kröfur frá fjármálaráðherrum evrusvæðisins í gærkvöldi fyrir því að samþykkja nýjan 130 milljarða evra björgunarpakka fyrir Grikkland. Það er að þeir séu núna viljandi að reyna að koma Grikkjum út af svæðinu.“ Meira »
Grímur tengdar samtökunum Anonymous.

Árás á vefsvæði CIA

Í gær, 23:16 Vefsvæði bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, er óaðgengilegt eftir tölvuárás samtakanna Anonymous fyrr í dag. Meðlimir samtakanna hafa fagnað sigri á samfélagsvefnum Twitter á sama tíma og talsmaður CIA sagði við fréttaveituna AFP að málið væri í rannsókn. Meira »

Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin myndskeið

Mótmæli í Grikklandi
Í gær, 23:04 Gríska samsteypustjórnin samþykkti í kvöld samhljóða að fallast á þau skilyrði sem gerð eru til þess að greitt verði til Grikklands 130 milljarða evra neyðarlán. Talið er að gríska þingið muni greiða atkvæði um sömu skilyrði, niðurskurð og aðhald, á morgun. Meira »

Banna eyrnastýfingu hunda

Dobermann hundur skott- og eyrnastýfður.
Í gær, 20:07 Yfirvöld í fjórum fylkjum Kanada hafa nú bannað eyrnastýfingu hunda. Aðgerðin er framkvæmd á hvolpum og felur í sér að stór hluti eyrans er fjarlægður og oft gerð til að gera hundana vígalegri. Meira »

Vilja handtaka fulltrúa AGS

Poul Thomsen, fyrir miðri mynd, á leið á fund með gríska fjármálaráðherranum.
Í gær, 18:17 Gríska lögreglufélagið hótar að handtaka Danann Poul M. Thomson, varaframkvæmdastjóra Evrópudeildar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Ástæðuna segir félagið vera óvinsælar niðurskurðarkröfur AGS á Grikklandi. Meira »

Mynd ársins tekin í Jemen

Mynd ársins. Kona heldur slösuðum ættingja að brjósti sínu í mosku á meðan átökunum í ...
Í gær, 20:22 Spænski ljósmyndarinn Samuel Aranda á bestu mynd ársins 2011 að mati World Press Photo. Á myndinni sést jemensk kona halda að brjósti sínu slösuðum ættingja eftir uppreisnina í borginni Sana. Myndin var tekin 15. október á síðasta ári og birt í New York Times. Meira »

Bannað að biðja á bæjarráðsfundum

Í gær, 19:13 Hæstiréttur Bretlands segir ólöglegt að hafa bænastund á dagskrá bæjar- og borgarstjórnafunda. Bæjarfulltrúi gagnrýnir niðurstöðuna og segir tilbeiðslu hluta af bresku samfélagi. Meira »

Fyrirtækin slást um verkfræðingana

Statoil vantar verkfræðinga.
Í gær, 16:56 Verkfræðingar í Noregi vaða í atvinnutilboðum. Í gær slógust um 100 tæknifyrirtæki um nýútskrifaða verkfræðinga frá Norska tækniháskólanum (NTNU). Meira »

Risaháfur á land

Ekki dugði einn krani til að lyfta fiskinum.
Í gær, 16:50 Hann er engin smásmíði risaháfurinn sem pakistanskir hafnarstarfsmenn hífðu á land í Karachi í vikunni. Risaháfurinn fannst dauður í höfninni og var seldur hæstbjóðanda á 2,3 milljónir króna. Meira »

Átök á götum Aþenu

Lögreglumaður í óeirðabúningi sparkar í liggjandi mótmælanda í Aþenu í dag.
Í gær, 15:40 Átök brutust út í dag í miðborg Aþenu, höfuðborg Grikklands, á milli mótmælenda og lögreglumanna. Mikil reiði ríkir í samfélaginu vegna ákvörðunar stjórnvalda að láta undan þrýstingi ráðherra í evruríkjunum og leggja blessun sína yfir frekari aðhaldsaðgerðir. Meira »

Ævisaga Pútíns skyldulesning

Pútín stefnir á sigur í forsetakosningum 4. mars næstkomandi.
Í gær, 16:31 Nokkrir skólar í Rússlandi hafa fengið opinbera hvatningu um að fjárfesta í eintökum af bók um æsku- og skólaár Vladímírs Pútíns, sem búist er við að snúi aftur í forsetastól í mars. Bókin ber heitið „Vladímír Pútín. Foreldrar. Vinir. Kennarar“ og kom út árið 2004. Meira »

Refsilaus mynd með nasistafána

Heillandi félagsskapur.
Í gær, 15:36 Hópur af bandarískum hermönnum, sem lét smella af sér mynd með vopn á lofti við hliðina á nasistafána, hefur fengið aðvörun fyrir athæfi sitt en verður ekki refsað. Þetta kom fram í tilkynningu frá bandaríska hernum í gær. Meira »

Þrír látnir og tveir særðir eftir gíslatöku

Í gær, 15:33 Þrír eru látnir og tveir alvarlega særðir eftir gíslatöku á gistisvæði fyrir húsbíla á Flórída seint í gærkvöldi.  Meira »

Verkföll fyrir kjötkveðjuhátíð

Slökkviliðsmenn, fangaverðir og lögreglumenn mótmæla nú í Ríó.
Í gær, 15:07 Hundruð lögreglu- og slökkviliðsmanna lögðu niður vinnu í Ríó í Brasilíu í dag og kröfðust betri kjara. Aðeins er ein vika þar til kjötkveðjuhátíðin hefst en herlögregla á svæðinu hefur tilkynnt að allar sveitir hennar starfi eðlilega. Meira »

Fraus í hel

Í gær, 14:40 Rúmlega fertug kona fannst frosin í hel í helli í nágrenni Rómar á Ítalíu í dag en talið er að hún hafi leitað skjóls í hellinum í fimbulkulda. Meira »

Vill herskyldu fyrir konur

Espen Barth Eide, varnarmálaráðherra Noregs.
Í gær, 15:13 Espen Barth Eide, varnarmálaráðherra Noregs, segist íhuga að leggja til að konur gegni herskyldu til jafns við karla. Hann segir að eðli hermennsku hafi breyst og nú skipti þættir á borð við að geta hugsað kerfisbundið meira máli en líkamlegur styrkur. Meira »

Ungir Rússar taka eigið líf

Sjálfsmorðstíðni ungmenna í Rússlandi er há.
Í gær, 14:50 Sjálfsmorðstíðni rússneskra ungmenna fer stöðugt vaxandi og er næstum því þrefalt hærri en meðaltalstölur fyrir heiminn sýna. Fjögur þúsund ungir Rússar á aldrinum 15-19 ára taka eigið líf á hverju ári. Meira »

Lögsæki ekki dómara

Stuðningsmaður Garzóns sýnir myndir af meintum fórnarlömbum Franco-stjórnarinnar.
Í gær, 14:32 Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna lýsti í dag yfir áhyggjum sínum vegna sakfellingar spænska rannsóknardómarans Baltasar Garzón sem dæmdur hefur verið fyrir að misnota valdheimildir sínar við rannsóknir á stjórnarglæpum frá Franco-tímanum. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Úrval af fjarstýrðum þyrlum og m.fl.
Erum með fjarstýrðar þyrlur í miklu úrvali. Netlagerinn slf Dugguvogur 17-19, 2....
HONDA CRF-150cc 2007..SKOÐA ÖLL SKIPTI..
Til sölu Honda CRF-150cc fjórgengiskrossari, árgerð 2007. Hjólið er í toppstandi...
PARSUN UTANBORÐSMÓTORAR 2,6 - 5- 15 -25 HP Á LAGER
Erum að fara panta, getum tekið niður óskir um aðrar stærðir. Einnig hægt að fá...
Notuð dekk á www.Haninn.is
Notuð dekk koma og fara fljótt hjá okkur. Fylgstu með daglega einmitt núna! Þarf...
 
Aðalfundur
Fundir - mannfagnaðir
Aðalfundur Aðalfundur SFR st...
Sölumaður óskast
Sölu/markaðsstörf
Sölumaður óskast Í boði er spennandi söl...
Framhald uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Til sölu bátur
Til sölu
Til sölu Til sölu bátur ...