Líkt við blauta tusku
Nigel Farage, sem fer fyrir Sjálfstæðisflokki Breta á Evrópuþinginu, hefur látið hafa eftir sér að Herman Van Rompuy, fyrsti forseti Evrópusambandsins hafi jafn mikla persónutöfra og blaut tuska. Fjallað er um málið á vef breska ríkisútvarpsins.
Farage líkti einnig Rompuy, sem er fyrrverandi forsætisráðherra Belgíu, við lágt settan bankastarfsmenn og tók fram að hann kæmi ekki frá raunverulegu ríki.
Árás Farage, sem kom flestum á Evrópuþinginu á óvart, kom í kjölfar þess að Rompuy hélt jómfrúarræðu sína á Evrópuþinginu í Brussel.
„Mig langar ekki til þess að vera dónalegur,“ sagði Farage þegar hann hóf ræðu sína áður en hóf síðan að úthúða forsetanum í löngu máli. Þess má geta að Farage er þekktur fyrir hörð ummæli sín. Hann fer fyrir flokki sem berst fyrir því að Bretland dragi sig út úr Evrópusambandinu.
„Hver ertu eiginlega? Ég þekki engan í Evrópu sem nokkurn tímann hefur heyrt á þig minnst,“ þrumaði Farage á sama tíma og óánægjuskvaldur í þingsalnum jókst.
Farage viðurkenndi hins vegar að hann teldi Rompuy hæfan til að gegna starfi forseta, en tók fram að það gerði hann í sínum huga einnig hættulegan.
„Ég efast ekki um að ætlun þín sé að vera launmorðingi evrópsks lýðræðis og sjálfstæðis Evrópulanda,“ sagði Farage og bætti við: „Þú virðist fyrirlíta sjálfstæðar þjóðir. Kannski stafar það af því að þú kemur frá Belgíu sem er ekki alvöru ríki.“
Rompuy lét ummælin lítið á sig fá og vildi lítið sem ekkert gefa út á þau.
Erlent »
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 2. mars 2010, Erlent Kallaði Rompuy „raka tusku“
- Föstudagur, 11. mars 2011, Erlent ESB: Gaddafi frá völdum tafarlaust
- Miðvikudagur, 25. nóvember 2009, Erlent Leterme forsætisráðherra Belga
- Þriðjudagur, 1. júní 2010, Erlent Lýsa áhyggjum af stöðu mannréttindamála í Rússlandi
- Fimmtudagur, 19. nóvember 2009, Erlent Van Rompuy fyrsti forseti ESB
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja


































