Ráðgera ekki frekari viðræður

Reuters

Hollendingar hafa ekki gert ráð fyrir né sett á dagskrá frekari við ræður við Íslendinga um Icesave-skuldina, að því er Reuters-fréttastofan hefur eftir heimildarmanni sem þekkir vel til málsins. 

Sem kunnugt er lauk viðræðum Íslendinga við Breta og Hollendinga í gær án niðurstöðu. Heimildarmaður Reuters, sem krafðist nafnleyndar, sagði að Hollendingar væru opnir fyrir viðræðum við Íslendinga en að ekki hafi borist neinar nýjar uppástungur um viðræður. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert