Jarðskjálfti upp á 8,8 stig reið yfir Chile
Bandaríska jarðfræðistofnunin hefur hækkað skjálftann sem reið yfir Chile fyrir skömmu upp í 8,8 stig á Richter. Flóðaviðvörun hefur verið gefin út víða í Suður-Ameríku. Upptök skjálftans voru á Kyrrahafi í um 90 km fjarlægð frá borginni Concepcion og 317 km frá höfuðborg landsins, Santiago. Voru upptök skjálftans á 35 km dýpi. Mjög misvísandi er eftir fjölmiðlum heimsins hversu langt skjálftamiðjan var frá þéttbýlissvæðum í Chile en hér er byggt á frétt BBC um málið.
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að byggingar í höfuðborginni hafi gengið til og frá í 10-30 sekúndur og allt rafmagn hafi farið af borginni.
Meðal annars hefur verið gefin út flóðaviðvörun í Chile, Perú, Kosta Ríka, Panama, Kólumbíu og Ekvador. Japönsk yfirvöld hafa einnig gefið út flóðaviðvörun víða í Kyrrahafinu.
Ef litið er til fyrri skjálfta þá létust um 230 þúsund í jarðskjálftanum sem reið yfir Haítí. Sá skjálfti var 7 stig á Richter. Jarðskjálftinn á Súmötru á annan dag jóla árið 2004 kostaði 250 þúsund manns lífið en gríðarleg flóðbylgja reið þá yfir. Sá skjálfti var 9,2 stig. Skjálfti sem mældist 9,5 stig reið yfir Chile árið 1960. Miklar skemmdir urðu í þeim skjálfta en 1.655 létust.
Á vef BBC kemur fram að símalínur og nettengingar við stærstan hluta landsins séu óvirkar. Mark
Winstanley, sem hafði samband við BBC er staddur í Vina del Mar, 100 km norðvestur af Santiago, segir að byggingar hafi hrists og rafmagn farið af. Hann sjái hins vegar ekki að hús hafi hrunið.
Háskólaprófessor í Santiago, Cristian Bonacic, hafði samband við BBC og segir að skjálftinn hafi verið gríðarlegur en svo virðist sem borgin hafi sloppið furðu vel. Hann segir að netið virki en ekki farsímar.
Íslenska fyrirtækið Fram Foods er með starfsemi í Chile en það á 42% hlut í matvælafyrirtæki sem er með höfuðstöðvar í Valdivia sem er í suðurhluta Chile.
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn Þ Gíslason FÁHEYRÐUR STYRKLEIKI Á JARÐSKJÁLFTA EINS OG ÞESSUM SEM VARÐ Í ...
Erlent »
Föstudagur, 10.2.2012
- Reyna að losna við Grikki
- Árás á vefsvæði CIA
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin
- Mynd ársins tekin í Jemen
- Banna eyrnastýfingu hunda
- Bannað að biðja á bæjarráðsfundum
- Vilja handtaka fulltrúa AGS
- Fyrirtækin slást um verkfræðingana
- Risaháfur á land
- Ævisaga Pútíns skyldulesning
- Átök á götum Aþenu
- Refsilaus mynd með nasistafána
- Þrír látnir og tveir særðir eftir gíslatöku
- Vill herskyldu fyrir konur
- Verkföll fyrir kjötkveðjuhátíð
- Ungir Rússar taka eigið líf
- Fraus í hel
- Lögsæki ekki dómara
- Segir minni tiltrú á SÞ
- Seldi CIA gögn um rússneskar eldflaugar
- Fræg bygging eldi að bráð
- Spilling verður N-Kóreu að falli
-
Enn gýs í Eldhringnum
- Leggja niður störf og mótmæla
-
Tvær bílasprengjur í Sýrlandi
- Heimilislausir í skjól í Bakú
- Garzón gefst ekki upp
Fimmtudagur, 9.2.2012
-
Undirbúa olíudælingu úr skipinu
- Átta ára barn meðal látinna
- Leyfa fyrsta kjarnorkuverið frá 1978
- Ætla ekki að færa andstöðunni vopn
- Borin kennsl á 162 lík
- Leggja fram kvörtun hjá SÞ
- Mossad þjálfar andófsmenn í Íran
- Verkalýðsfélög boða verkföll
- Færri fæðingar í Danmörku
- Garzón sakfelldur
- Rússar efins um þjóðabandalag
- Grikkir hafa náð niðurstöðu
- Dóná ísilögð í sex löndum
-
Mannskæð bílsprengja í Taílandi
- Slóvakar styðja Grikki ekki frekar
- Myrti stuðningsfulltrúa í Danmörku
- Cameron vill læra af Íslandi
-
Handtekinn forseti kom til Íslands
-
Bygging stóðst ekki kröfur
Erlend málefni
- Strand skemmtiferðaskipsins Costa Concordia
- News of the World
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Mótmæli í Grikklandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 27. febrúar 2010, Erlent Öflugur jarðskjáflti í Chile
- Sunnudagur, 28. febrúar 2010, Erlent Yfir 300 látnir í Chile
- Sunnudagur, 2. janúar 2011, Erlent Harður jarðskjálfti í Chile
- Laugardagur, 27. febrúar 2010, Erlent Biður íbúa að halda ró sinni
- Laugardagur, 27. febrúar 2010, Erlent Flóðaviðvörun í 53 löndum
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suð...




































