Brown háll sem áll

Yfirheyrslunni yfir Brown var sjónvarpað í Bretlandi. stækka

Yfirheyrslunni yfir Brown var sjónvarpað í Bretlandi. Reuters

Bresk blöð eru sammála um, að Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hafi reynst háll sem áll þegar hann svaraði spurningum rannsóknarnefndar í gær um aðdraganda Íraksstríðsins. Brown hefði ruglað nefndarmenn í ríminu með talna- og upplýsingaflóði og sloppið óskaddaður frá yfirheyrslunni.

„Brosið sagði alla söguna: aðgerðin heppnaðist," sagði leiðarahöfundur Guardian um Brown í dag. 

Blaðið sagði, að Brown hefði svarað öllum spurningum rannsóknarnefndarinnar, sem John Chilcot stýrir, nema þeirri stærstu: Hvers vegna lýsti hann ekki andstöðu við stríðið?

Dálkahöfundar Guardian fjölluðu einnig um yfirheyrsluna. Simon Hoggart sagði, að Gordon Brown hefði látið orðum og tölum rigna yfir nefndina.   „Það varð að biðja hann að hægja á sér því hann talaði of hratt fyrir hraðritarann, sem hlýtur að hafa misst meðvitund," sagði Hoggart. Hann bætti við, að svo virtist sem Brown hefði verið að leika nýjan óhugnanlegan leik með því að tala eins lengi og mögulegt var og nota öll hugsanleg undanbrögð og endurtekningar.

Blaðið Daily Telegraph sagði í leiðara, að framburður Browns hefði ekki verið til þess fallinn að leiða fram staðreyndir og læra af þeim heldur að hreinsa forsætisráðherrann af allri sök. „Við þekkjum vel spegla og reykbrelluaðferðina. Honum líður aldrei betur en þegar hann getur þulið upp tölur eða vísað til skjala sem birt voru fyrir sex árum. Honum tókst að skapa þá tilfinningu, að hann hefði stutt innrásina í Íran en hefði samt ekki tengst henni á neinn hátt."

Kevin Maguire, dálkahöfundur Daily Mirror, sagði að Brown hefði staðið sig meistaralega og tekist að komast yfir erfiðustu hindrunina í aðdraganda þingkosninganna, sem verða í vor.  

Blaðið Financial Times sagði, að þegar vandamál skytu upp kollinum væri Brown „aldrei þar" og honum hefði tekist að tryggja að fingraför hans væru ekki á þeirri ákvörðun að fara í stríðið. Hins vegar benti rannsóknin til þess að Brown hefði tekið fullan þátt í þeirri ákvörðun og því vöknuðu spurningar um persónu hans. „Það vekur áhyggjur að hann skuli aldrei viðurkenna mistök og einnig að hann skuli víkja sér undan ábyrgð."

Blaðið The Independent sagði, að Brown hefði í raun varpað sökinni á aðra og hefði sloppið að mestu leyti óskaddaður og jafnvel grætt á öllu saman. Yfirheyrslan yfir Brown myndi væntanlega ekki hafa nein áhrif á kosningarnar og betri niðurstöðu hefðu Brown varla getað vænst.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »
Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að reka barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá myndskeið

Evruskuldabréf aftur á dagskrá
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Glæsilegt sumarhús í Borgarfirði til leigu
Glæsilegt heilsárshús til leigu 11km norður af Borgarnesi. Stutt í frábærarar n...
Zimmermann píanó
Til sölu vel meðfarið Zimmermann píanó. Verð 125.000. Upplýsingar í síma 84589...
Glæsilegt sumarhús í Borgarfirði til leigu
Glæsilegt heilsárshús til leigu 11km norður af Borgarnesi. Stutt í frábærarar ná...
Coleman Bayside 12" fellihýsi árg. 2003 til sölu
Coleman Bayside 12 " fellihýsi árg. 2003 til sölu. Borðkrókurinn er útdraganleg...
 
Hjúkrunarfræðingur/ snyrtifræðingur
Hárgreiðsla/Snyrting
Hjúkrunarfræðingur eða snyrtifræðingur ...
Stykkishólmur vatnshús við skipavíkurbryggju

Útboð Stykkishólmur, vatnshús við...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...