Fréttaskýring: 96 milljóna kvenna er „saknað“ í Asíu

stækka

ENRIQUE CASTRO-MENDIVIL

Morgunblaðið Eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is

Um 96 milljóna kvenna er „saknað“ í Asíu að mati Sameinuðu þjóðanna. Morð á stúlkubörnum og fóstureyðingar vegna kyns hafa leitt til alvarlegs ójafnvægis milli kynjanna í Asíu og er ástandið langverst á Indlandi og í Kína, samkvæmt skýrslu, sem þróunarstofnun SÞ (UNDP) birti í gær.

Í heiminum fæðast að meðaltali 107 drengir á móti hverjum 100 stúlkum. Líklegra er að drengir deyi þegar þeir eru ungbörn en stúlkur og þetta virðist vera leið náttúrunnar til að tryggja jafnvægi milli fjölda karla og kvenna við kynþroska. Í Austur-Asíu er hlutfallið hins vegar 119 drengir á móti hverjum 100 stúlkum. „Gamalt hugarfar þar sem sveinbörn eru tekin fram yfir blandast nú við nútímatækni í læknavísindum,“ sagði Anuradha Rajivan, aðalhöfundur skýrslunnar, og bætti við að tæknin gerði kleift að greina kvenkyns fóstur og eyða þeim.

Mestur er vandinn á Indlandi og í Kína. Samkvæmt skýrslunni er 85 milljóna kvenna „saknað“ þar.

Í Kína hefur orðið gríðarleg breyting til hins verra á aldarfjórðungi. Í úttekt í nýjasta tölublaði vikuritsins The Economist kemur fram að 108 drengir fæddust fyrir hverjar 100 stúlkur á árunum 1985 til 1989, sem er rétt yfir hinu eðlilega hlutfalli. Á árunum 2000 til 2004 var hlutfallið 124 drengir fyrir hverjar 100 stúlkur. Allt bendir til þess að þetta ósamræmi megi rekja beint til fóstureyðinga.

Í Kína ríkir sú stefna að hjón skuli aðeins eignast eitt barn, en á henni eru undantekningar, sem fara eftir búsetu og því hvort fyrsta barn hafi verið stúlka. Þegar tölurnar eru skoðaðar í Guangdo-héraði fæðast 120 sveinbörn fyrir hver 100 meybörn, en þegar horft er á fyrsta barn foreldra kemur í ljós að það fæðast 108 sveinbörn fyrir hver 100 meybörn. Við annað barn fer hlutfallið í 146 drengi á móti 100 stúlkum og í þeim fáu tilfellum þar sem foreldra fengu að eignast þriðja barn fór hlutfallið í 167 drengi á móti 100 stúlkum.

Kínverska félagsvísindaakademían spáði því í janúar að innan tíu ára yrði sú staða komin upp að fimmti hver ungur maður gæti ekki fundið sér konu. Árið 2020 yrði staðan sú að í Kína yrðu 30 til 40 milljónum fleiri karlar en konur undir 19 ára aldri. Kínverjar kalla þessa ógiftu karla berar greinar og þeim fjölgar ört. Tíðni glæpa hefur nánast tvöfaldast á undanförnum 20 árum og talið er að þetta megi að hluta til rekja til þessa ójafnvægis, til ungra karla, sem eru í reiðileysi vegna þess að þeir eiga hvorki konur né börn.

Á Indlandi hefur svipuð þróun átt sér stað þótt ástæðurnar séu aðrar. Þar eru synir teknir fram yfir dætur. Ekki eru haldnar skrár á Indlandi yfir nýfædd börn, en hlutfallið var 104 á móti 100 hjá börnum undir sex ára aldri 1981, en 108 á móti 100 árið 2001. Árið 1991 var eitt hérað þar sem hlutfallið milli kynjanna fór yfir 125 á móti hverjum 100, en 2001 voru héruðin orðin 46.

Þetta er ískyggileg þróun og hún mun aðeins breytast með auknu jafnrétti og áherslu á réttindi kvenna.

VIJAY MATHUR

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »
Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að reka barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá myndskeið

Evruskuldabréf aftur á dagskrá
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Lightroom námskeið 11.og 13. júní 2012
Grunn námskeið í Lightroom. Kennd verða allir helstu verkferlar og á helstu aðge...
LED perur 80% orkusparnaður !
LED er þróun sem lækkar orkunotkun allt að 80%, perurnar eru umhverfisvænar. Ve...
Handfærasökkur
Eigum til handfærasökkur 2,6 kg á lager, einnig nýsmíði og viðhald úr ryðfríu st...
Raflagnaefni
Eftirstöðvar af rafmagnsvörulager til sölu. Vír, rör, töfluefni, Ticino efni, H...
 
Samkoma sunnudagur
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Stykkishólmur vatnshús við skipavíkurbryggju

Útboð Stykkishólmur, vatnshús við...
Hjúkrunarfræðingur/ snyrtifræðingur
Hárgreiðsla/Snyrting
Hjúkrunarfræðingur eða snyrtifræðingur ...