Fornritin góð heimild um veður
Landnámabók er varðveitt í Árnastofnun. Hún reynist vera býsna góð heimild um veðurfar. Þorkell Þorkelsson
Vísindamenn sem rannsökuðu íslenskar skeljar segja að súrefnissamsætur í skeljunum kunni að vera besta heimildin, sem hingað til hefur þekkst, um loftslagsbreytingar á heimsvísu. Skeljarnar sýna að íslensku fornritin eru nokkuð nákvæm heimild um veðurfar.
Flestar mælingar um loftslag til forna sýna einungis meðalhitastig, að sögn William Patterson, sérfræðings í samsætum við háskólann í Saskatchewan í Saskatoon í Kanada og aðalhöfundar skýrslunnar, í samtali við Nature News. Þetta kemur fram hjá sifynews.
Lindýr eru í stöðugum vexti. Styrkur ýmissa súrefnissamsæta í skeljum þeirra er breytilegur eftir hitastigi vatnsins sem þau lifa í. Því kaldara sem vatnið er þess meiri verður styrkur þungrar súrefnissamsætu (oxygen-18). Vatns- eða sjávarhitinn á grunnu vatni er í nánu sambandi við lofthitann.
Rannsakaðar voru 26 skeljar sem fundust í setlagakjörnum sem teknir voru í íslenskum flóa. Skeljarnar lifa yfirleitt í tvö til níu ár hver. Samsætuhlutfallið í hverri skel gefur því upplýsingar um ástand umhverfisins á ævi skeljarinnar.
Þjarki var notaður til að taka örþunnar sneiðar af hverjum vaxtarhring skeljanna og síðan var hlutfall samsætanna mælt. Þanig var hægt að lesa úr skeljunum hvernig hitastigið sveiflaðist.
Eitt af markmiðum Pattersons var að sannreyna gamlar ritaðar heimildir hér á landi um veðurfarið. Rannsóknin sýndi að íslensku fornritin voru tiltölulega nákvæm heimild.
Þannig greinir Landnámabók frá slíku hallæri að menn lögðu sér til munns hrafna og refi og að gömlum og veikburða var hent fyrir björg. Skeljarnar staðfesta að þá hafi komið kuldaskeið þegar sjávarhiti að sumri náði einungis 5°-6°C hita í stað 7,5°-9,5°C hita einni öld fyrr.
Gögn Pattersons sýna einnig ýmsar loftslagsbreytingar sem sagnfræðingar höfðu skráð á bækur. Þannig var hlýskeið á tímum Rómverja, kuldaskeið á hinum dimmu miðöldum og hlýskeið á þeim tíma þegar Ísland var numið.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Þór Guðjónsson Hvaða fornrit -
Guðjón Sigþór Jensson Fleiri stoðir undir fyrri vitneskju -
Magnús Óskar Ingvarsson Traustar heimildir -
Loftslag.is Fornhitastig sjávar við Íslandsstrendur
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Mánudagur, 11. október 2010, Innlent Strákagöng lokuð í nótt
- Miðvikudagur, 8. desember 2010, Innlent Samþykkt að leggja Íbúðalánasjóði til 33 milljarða
- Miðvikudagur, 14. júlí 2010, Innlent Guðrún formaður stjórnlaganefndar
- Fimmtudagur, 15. júlí 2010, Innlent Flatmaga í sólinni
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































