Stoltur af hörðum yfirheyrslum
Karl Rove hefur verið kallaður „heili Bush“. JASON REED
Hátt settur ráðgjafi George Bush yngri, fyrrum forseta Bandaríkjanna, ver í viðtali við BBC harkalegar yfirheyrsluaðferðir, sem stjórn Baracks Obama, núverandi bandaríkjaforseta, hefur bannað.
Karl Rove, sem hefur verið kallaður „heili Bush“, segist vera „stoltur af því við skyldum nota aðferðir sem brutu á bak aftur vilja þessara hryðjuverkamanna“. Jafnframt fullyrðir hann að upplýsingar sem fengust með slíkum aðferðum hafi verið hægt að nota til að koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir, til að mynda á London og Los Angeles.
Segir „waterboarding“ ekki vera pyntingar
Rove ver m.a. aðferð sem á ensku nefnist „waterboarding“ og felst í því að viðkomandi er bundinn þannig að höfuð hans hallar niður á við, og vatni helt yfir andlit hans, sem framkallar drukknunartilfinningu. Obama bannaði aðferðina á síðasta ári og sagði hana ekkert annað en eitt form pyntingar. Rove segir hins vegar rangt að kalla aðferð þessa pyntingu; og bendir á að henni sé beitt á bandaríska hermenn sem lið í þjálfun þeirra.
Vitað er að aðferðinni hefur verið beitt á fanga í Guantanamo fangelsinu, m.a. á Khalid Sheikh Mohammed sem talinn er vera einn af höfuðpaurum hryðjuverkaárásarinnar 11. september 2001.
„Já, ég er stoltur af því að við skyldum hafa gert heiminn að öruggari stað með því að nota þessar aðferðir. Þær eru viðeigandi, og samrýmast alþjóðlegum skuldbindingum okkar og bandarískum lögum,“ segir Rove, sem hefur nýlega skrifað endurminningar sínar, Courage and Consequence.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 10. apríl 2009, Erlent Sakar Biden um lygar
- Fimmtudagur, 28. október 2010, Erlent Rove hefur efasemdir um Palin
- Þriðjudagur, 3. mars 2009, Erlent CIA eyddi 92 upptökum
- Fimmtudagur, 14. maí 2009, Erlent Pelosi segir CIA hafa sagt sér ósatt
- Mánudagur, 31. ágúst 2009, Erlent Lítið gert úr máli Cheney
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































