Viðtal eða ekki viðtal - það er spurningin
Winnie Madikizela-Mandela. mbl.is
Winnie Mandela, fyrrverandi eiginkona Nelsons Mandela, fyrrum forseta Suður-Afríku, neitaði því í gær að hafa veitt enska blaðinu Evening Standard viðtal en blaðið hafði í vikunni eftir Winnie ýmis ummæli sem hafa valdið miklu uppnámi í Suður-Afríku.
Blaðið hafði m.a. eftir Winnie Madikizela-Mandela, að fyrrum eiginmaður hennar hefði brugðist suður-afrísku þjóðinni og hún gæti ekki fyrirgefið honum að hafa þegið friðarverðlaun Nóbels árið 1993 ásamt F.W. De Klerk, þáverandi forseta Suður-Afríku.
Madikizela-Mandela segist nú ekki hafa veitt blaðinu viðtal en ber þó ekki til baka að hafa viðhaft þessi ummæli.
„Ég mun á næstu dögum fást við það sem ég lít á sem óskiljanlega tilraun til að grafa undan einingunni í fjölskyldu minni, arfleifð Nelsons Mandela og þeirri virðingu, sem borin er fyrir Mandela-nafninu hér og um allan heim," segir Madikizela-Mandela í yfirlýsingu sem Nelson Mandela stofnunin sendi frá sér.
Evening Standard segir að Nadira Naipaul, eiginkona Nóbelsskáldsins V.S. Naipaul, hafi tekið viðtalið við Winnie. Blaðið segir að Nadira Naipaul sé virtur blaðamaður, sem hafi heimsótt Winnie Mandela á heimili hennar og rætt ýtarlega viðhana. „Við skiljum ekki að Winnie Mandela skuli afneita því að viðtalið hafi farið fram," segir í yfirlýsingu frá blaðinu.
Nadira Naipaul hefur einnig lýst því yfir að viðtalið hafi fram eins og því sé lýst í blaðinu og hún hafi haft yfirlýsingar Winnie rétt eftir.
Í viðtalinu sakar Winnie Mandela núverandi stjórnvöld í Suður-Afríku um að hagnýta sér ímynd Nelsons Mandela en skáka honum jafnframt út á hliðarlínuna. Þá segir hún að Desmond Tutu, biskup og þjóðhetja í Suður-Afríku, sé rugludallur.
Winnie Mandela barðist fyrir því að þáverandi eiginmaður hennar yrði látinn laus úr fangelsi. Þau skildu hins vegar sex árum eftir að Mandela var sleppt en hann sakaði Winnie um framhjáhald. Samband þeirra hefur þó batnað á undanförnum árum.
Erlent »
- Hóta vesturlöndum og Ísrael
-
Íranar fagna byltingarafmæli
- Hvatt til fjöldamótmæla á Spáni
- Gingrich og Santorum herja á Obama
- Barist um bandarísku sálina
- Ásaka Breta um hervæðingu
- Dóná fraus í nótt
- Segja al-Qaeda bera ábyrgð í Sýrlandi
- Saadi Gaddafi boðar byltingu
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
Föstudagur, 10.2.2012
- Reyna að losna við Grikki
- Árás á vefsvæði CIA
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin
- Mynd ársins tekin í Jemen
- Banna eyrnastýfingu hunda
- Bannað að biðja á bæjarráðsfundum
- Vilja handtaka fulltrúa AGS
- Fyrirtækin slást um verkfræðingana
- Risaháfur á land
- Ævisaga Pútíns skyldulesning
- Átök á götum Aþenu
- Refsilaus mynd með nasistafána
- Þrír látnir og tveir særðir eftir gíslatöku
- Vill herskyldu fyrir konur
- Verkföll fyrir kjötkveðjuhátíð
- Ungir Rússar taka eigið líf
- Fraus í hel
- Lögsæki ekki dómara
- Segir minni tiltrú á SÞ
- Seldi CIA gögn um rússneskar eldflaugar
- Fræg bygging eldi að bráð
- Spilling verður N-Kóreu að falli
-
Enn gýs í Eldhringnum
- Leggja niður störf og mótmæla
-
Tvær bílasprengjur í Sýrlandi
- Heimilislausir í skjól í Bakú
- Garzón gefst ekki upp
-
260 dauðir höfrungar á land
- Leitað að lausn á Maldíveyjum
- Hældi Breivik á Facebook
- Dönsk ungmenni vilja ekki í sturtu
-
Áframhaldandi ógnaröld í Homs
- Grikkjum sett hörð skilyrði
- Kvenhermenn nær vígvellinum
-
FBI birtir skjöl um Steve Jobs
-
Obama hrósaði Monti
Erlend málefni
- Strand skemmtiferðaskipsins Costa Concordia
- News of the World
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Mótmæli í Grikklandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 11. júní 2010, Erlent Sár missir Mandela
- Föstudagur, 5. febrúar 2010, Erlent Mandela fagnar 20 ára frelsi
- Fimmtudagur, 11. febrúar 2010, Erlent 20 ár frá því Mandela var látinn laus
- Föstudagur, 7. ágúst 2009, Erlent Clinton fundaði með Mandela
- Sunnudagur, 10. janúar 2010, Erlent Brown í kröppum dansi
-
Fólk víða að minnast Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði ōðruvísi biskup
-
Lík Houston flutt af hótelinu
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað




































