Gabbfrétt vekur reiði í Georgíu
Gabbfrétt um innrás Rússa hefur vakið mikla reiði í Georgíu. Fréttin, sem birt var á georgískri sjónvarpsstöð á laugardag, vakti í upphafi mikinn ótta hjá íbúum.
Ríkisstjórn Mikheil Saakashvili, sem er hlynnt aukinni samvinnu við Vesturlönd, hefur lýst því yfir að stjórnvöld séu jafn hissa og aðrir á gabbinu. Stjórnarandstaðan hefur hins vegar fullyrt að um ríkisstyrkt gabb hafi verið að ræða og ætlunin hafi verið að kasta óorði á andstæðinga stjórnvalda.
Að sögn georgískra fréttastöðva olli fregnin miklum ótta. Neyðarlínunni bárust fjölda símtala, mikil aukning varð á hjartaáföllum og fjöldi frétta var af fólki sem féll í yfirlið.
Fréttin var send út á einkareknu sjónvarpsstöðinni Imedi í gærkvöldi. Þar kom fram að rússneskir skriðdrekar væru nú á leið til höfuðborgarinnar Tíblisi, Saakashvili hefði verið myrtur og að stjórnarandstaðan hefði slegist í lið með innrásaröflunum.
Með fréttinni voru birtar myndir af innrás rússneskra hersveita í Georgíu í ágúst 2008. Örstutt yfirlýsing var birt á undan fréttinni þar sem fram kom að um eftirlíkingu mögulegra atburða væri að ræða. Fréttin sjálf virkaði hins vegar mjög svo raunveruleg og henni fylgdi enginn viðvörun að um gabb væri að ræða.
Nino Burjanadze, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, og einn þeirra sem sagður var hafa slegist í lið með Rússum, sagði um ríkisrekinn áróður að ræða. „Það er svívirðilegt hvernig stjórnvöld fara með kjósendur. Ég er viss um að hver sekúnda naut samþykkis Saakashvilis. Margir fengu andlegt áfall,“ sagði Burjanadze í viðtali við AFP-fréttastofuna.Yfirvöld í Georgíu hafa sætt vaxandi gagnrýni frá stofnunum sem fylgjast með frelsi fjölmiðla á alþjóðavettvangi. En stjórnvöld þykja ráðskast með fjölmiðla, sérstaklega ljósvakamiðlana.
Ríkisstjórnin neitar því hins vegar með öllu að sér hafi verið kunnugt um birtingu fréttarinnar fyrirfram og fordæmdi hana sem óábyrga.
Imedi sjónvarpsstöðin hefur beðist afsökunar á útsendingunni, en þó ekki fyrr hópur reiðra Georgíubúa hófu mótmælaaðgerðir og fordæmdu stöðina.
Yfirvöld í Rússlandi hafa líka fordæmt fréttina og kallað hana ríkisrekin áróður.Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 16. mars 2010, Erlent Vestrænir sendimenn gagnrýna gabbfrétt
- Föstudagur, 1. maí 2009, Erlent Stjúpi Baby P fundinn sekur um nauðgun
- Fimmtudagur, 9. apríl 2009, Erlent Tugþúsundir mótmæla í Georgíu
- Föstudagur, 10. apríl 2009, Erlent Mótmæli gegn forseta Georgíu
- Þriðjudagur, 5. maí 2009, Erlent Lavrov mætir ekki á NATO fund
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































