Netanyahu sætir gagnrýni heimafyrir

Deila Ísraelsríkis og Bandaríkjanna er talin sú versta í áratugi. stækka

Deila Ísraelsríkis og Bandaríkjanna er talin sú versta í áratugi. Reuters

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, sætir gagnrýni heimafyrir vegna deilu sem sem upp er komin milli Ísraels og Bandaríkjanna og talin er versta missætti sem upp hefur komið milli ríkjanna í áratugi.

„Við sáum fréttirnar og fréttaskýringarnar þegar við opnuðum blöðin í morgun. Ég legg til að við höldum ró okkar,“ sagði Netanyahu á vikulegum ríkisstjórnarfundi. „Við kunnum að fást við ástand eins og þetta, með ró, ábyrgð og af alvöru.“

Stjórnvöld í Ísrael höfðu talið að opinber afsökunarbeiðni síðasta fimmtudag hefði lægt verstu öldurnar. Deilunni olli tilkynning stjórnvalda um byggingu nýrra landnemabyggðar í austurhluta Jerúsalem á sama tíma og Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna var í heimsókn í Ísrael.

Yfirlýsingar Bandaríkjastjórnar yfir helgina benda þó til þess að svo sé ekki. Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, húðskammaði Netanyahu í þriggja kortera símtali áður en hún sagði fjölmiðlum að tilkynningin hefði verið móðgandi og send einstaklega neikvæð skilaboð um tengsl Ísraela við helsta bandamann sinn.

„Deilan er enn í gangi og hefur náð nýjum hæðum. Svo virðist sem hún sé mun alvarlegri en þau missætti sem við höfum upplifað sl. áratug, og jafnvel þarf að fara enn lengra aftur í tímann,“ segir í leiðara ísraelska dagblaðsins Maariv.

„Hvenær heyrðum við síðast jafn harkaleg orð frá Washington, sögð jafn kaldri og fjarlægri röddu? Og það er ekki bara orðin og tónninn. Það er skorturinn á trausti, fyrirlitningin,“ sagði í leiðara Aharonot dagblaðsins sem skrifaður var undir fyrirsögninni „Hrækt í andlitið.“

Stjórnvöld í Ísrael hafa alltaf litið á Bandaríkin sem sinn mikilvægasta bandamann og á seinni árum sem mikilvægan samherja í baráttunni gegn því að Íran nái að kjarnorkuvæðast.

„Næstu dagar munu skipta miklu máli. Kjarnorkuógnin krefst þess að forsætisráðherra okkar sé náðinni hjá forseta Bandaríkjanna,“ sagði leiðari Maariv. „Þess í stað erum við með forsætisráherra sem nálgast það að vera útskúfaður í Washington.“

Dagblaðið Haaretz, lagði til að Netanyahu myndi endurmeta hina hægri sinnuðu stjórn sína. „Nú er komið að örlagastund hjá forsætisráðherranum. Hann verður að velja milli hugmyndafræði sinnar og stjórnmálasamstarfs annars vegar og þörfinni fyrir stuðning Bandaríkjamanna hins vegar,“ sagði í leiðara blaðsins.

Tilkynning Ísraelstjórnar um byggingaframkvæmdirnar hafði veruleg áhrif á margra mánaða tilraunir Bandaríkjamanna til að koma á friðarviðræðum á ný milli Ísraela og Palestínumanna. En ekki hafa farið fram friðarviðræður milli ríkjanna frá því til átaka kom á Gaza í janúar í fyrra. 

Að sögn fjölmiðla höfðu Bandaríkin og Ísrael náð leynilegu samkomulagi um að Ísraelsríki myndi stilla sig um að tilkynna frekari byggingaframkvæmdir í austurhluta Jerúsalem, sem og að fresta frekari framkvæmdum á Vesturbakkanum um tíu mánuði, líkt og áður hafði verið samþykkt.

Netanyahu er sagður hafa sett á fót nefnd til að rannsaka tilkynninguna um byggingaframkvæmdirnar í Jerúsalem, sem send var út án hans vitundar. Þá hefur hann bannað ráðherrum ríkisstjórnarinnar að tjá sig við fjölmiðla.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Frá Sýrlandi

Árásir í sólarupprás í Homs

08:44 Stjórnarherinn í Sýrlandi hélt áfram árásum sínum á borgina Homs í morgun. Sýrlensk stjórnvöld hafa hafnað tillögu Arababandalagsins um að senda friðarsveitir til landsins. Meira »
Frá Kúveit-borg.

Hættur vegna eyðslu ríkisins

06:41 Seðlabankastjóri Kúveit, Salem Abdulaziz Al-Sabah, hefur sagt af sér í mótmælaskyni gegn vaxandi eyðslu ríkisins en hann hefur gegnt embættinu undanfarinn aldarfjórðung að sögn fréttaveitunnar AFP. Meira »

Átök í Aþenu myndskeið

Niðurskurður samþykktur á sama tíma og Aþena brennur
08:37 Tugir þúsunda tóku þátt í mótmælum í Aþenu í nótt eftir að gríska þingið samþykkti niðurskurðaráætlanir stjórnvalda. Víða var kveikt í byggingum í Aþenu og brutust út átök milli mótmælenda og lögreglu. Meira »

Grikkir samþykkja niðurskurð

Lucas Papademos forsætisráðherra Grikklands á þinginu í dag.
Í gær, 22:53 Gríska þingið hefur samþykkt umdeildar niðurskurðartillögur. Mikil mótmæli hafa verið í Aþenu, höfuðborg landsins, í dag.   Meira »

Biður Bashar al-Assad að afsala sér völdum

Fjöldamótmæli hafa verið í Sýrlandi gegn Bashar al-Assad, forseta landsins. Þessi mynd var tekin í ...
Í gær, 22:39 Moncef Marzouki, forseti Túnis, vonast til þess að hægt verði að finna friðsamlega lausn á mótmælaöldunni í Sýrlandi en fjölmargir hafa látið lífið í átökum mótmælenda og stjórnarhers. Meira »

Skortur á menntuðum kennurum í ESB

Við höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar ESB í Brussel.
07:07 Ríki Evrópusambandsins eru farin að finna fyrir skorti á menntuðum kennurum í vaxandi mæli samkvæmt fréttavefnum Euobserver.com. Fram kemur að staðan í þeim efnum fari stöðugt versnandi og að framkvæmdastjórn sambandsins hafi séð ástæðu til þess að vekja sérstaka athygli á þessum vanda. Meira »

Farþegi réðst á flugmanninn

Í gær, 22:46 Farþegi um borð í þotu á flugi milli Montevideo og Sao Paulo í Brasilíu réðst á flugmanninn. Annar farþegi kom flugmanninum til bjargar. Meira »

Skemmdarverk verða ekki liðin myndskeið

Mótmælin í grikklandi
Í gær, 22:13 Lucas Papademos, forsætisráðherra Grikklands, hvetur þjóð sína til að sýna stillingu en margir mótmælendur hafa safnast saman á götum úti á meðan gríska þingið ræðir niðurskurðartillögur. Meira »

Eldtungur teygja sig til himins

Reynt að slökkva eld í kvikmyndahúsi í miðborg Aþenu.
Í gær, 21:19 Eldtungur teygja sig til himins í Aþenu, höfuðborg Grikklands, en á morgun verða greidd atkvæði í gríska þinginu um umdeildar niðurskurðartillögur. Tillögurnar eiga að koma í veg fyrir að landið verði gjaldþrota. Meira »

Murdoch á leið til Bretlands

Fer The Sun sömu leið og News ff the World?
Í gær, 17:25 Fjölmiðlakóngurinn Rupert Murdoch er væntanlegur til Bretlands í vikunni til að takast á við vaxandi fjölmiðlafár í kringum veldi hans. Fimm blaðamenn dagblaðsins The Sun, sem er í eigu Murdochs, voru handteknir í gær. Meira »

Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði myndskeið

Stúlku bjargað
Í gær, 19:28 Að minnsta kosti níu létust í snjóflóði í afskekktu fjallaþorpi í suðurhluta Kósóvó í gær. Björgunarmenn fundu fimm ára stúlku á lífi en foreldrar hennar og ættingjar eru meðal þeirra sem létust. Meira »

Baða sig í snjónum á vetrarhátíð

Það jafnast ekkert á við það að velta sér upp úr snjónum. Vetrarhátíðin í Quebec ...
Í gær, 17:11 Vetrarhátíðin í Quebec í Kanada er með nokkru öðru sniði en sú íslenska sem stendur yfir um helgina. Meðal dagskrárliða er snjóbað þar sem fólk rífur sig úr hverri spjör og veltir sér upp úr snjónum. Meira »

Heimildarmynd um árásina 1972

Meðlimur hryðjuverkasamtakanna Svarti september í árásinni 1972.
Í gær, 17:10 Eftirlifendur hryðjuverkaárásarinnar á Ólympíuleikunum í Munchen árið 1972 munu koma saman á vettvangi árásarinnar síðar í þessum mánuði en ástæða þess er sú að unnið er að gerð heimildarmyndar um atburðinn. Meira »

Krefjast réttlætis

Giorgio Napolitano, forseti Ítalíu, vottar ættingjum fórnarlamba slyssins samúð sína í Róm í dag.
Í gær, 16:40 Forseti Ítalíu krefst réttlætis fyrir hönd þeirra sem eiga um sárt að binda vegna strands skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Hann vill að allur sannleikurinn um orsakir slyssins verði dreginn fram í dagsljósið. Meira »

Flugvél ráðamanna Kongó fórst

Matata Ponyo, fjármálaráðherra Kongó, er talinn vera lífshættulega slasaður.
Í gær, 16:15 Minnst tveir létust og nokkrir særðust þegar einkaflugvél brotlenti í dag við flugvöllinn í borginni Bukavu í Kongó.   Meira »

Byrjað að dæla olíu úr skipinu

Costa Concordia á strandstað við ítölsku eyjuna Giglio.
Í gær, 16:56 Loksins er byrjað að dæla olíu úr skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem strandaði við strendur ítölsku eyjunnar Giglio fyrir mánuði. Meira »

Táragasi beitt í Grikklandi

Í gær, 16:30 Mikil mótmæli eru nú fyrir utan gríska þingið í Aþenu á meðan þingmenn ræða erfiðan niðurskurð í opinberum útgjöldum. Talið er að tugþúsundir mótmælenda séu saman komnar fyrir utan þinghúsið og hefur lögreglan í Aþenu m.a. þurft að beita táragasi til að hafa hemil á ástandinu. Meira »

Gríska þingið ræðir aðgerðir

Í gær, 14:28 Gríska þingið fundar nú um niðurskurð í opinberum útgjöldum en hann er sagður nauðsynleg forsenda þess að Grikkir hljóti 130 milljarða evra neyðarlán frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Garðgeymslur mikið úrval
Hjá Jabohús er mesta úrval geymsluhúsa 4.6 - 15 m2 Góð reynsla, 5 ára ábyrgð. Kí...
FORD FIESTA TREND
Ford Fiesta trend Nýskr. 6/2007, ekinn 90 þ. km, bensín, 5 g...
FERMINGARVEISLUR
Fermingarveislur Klassískt heitt og kalt hlaðborð kr. 1990 á mann. Klassískt kaf...
Havanese til sölu m/ ættbók frá HRFI
Hreinræktaður frábær heimilishundur blíður og góður. Tæplega 2 ára strákur. Þæg...
 
I.o.o.f. 9
Félagsstarf
I.O.O.F. 9[19202088[ I*...
Stúkan edda
Félagsstarf
l EDDA 6012020719 III...
Vélavörður á sighvat gk-57
Sjávarútvegur
Vélavörður Vísir hf. óskar eftir vél...
Tryggingar - vátryggingavernd
Tilboð - útboð
Mynd af auglýsingu ...